Kom í veg fyrir blóðbað með fortölum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 11. janúar 2013 19:35 Sem betur fer var neminn talaður til.
Kennari og starfsmaður menntaskóla í bænum Taft í Kaliforníu eru taldir hafa komið í veg fyrir blóðbað þegar þeir töluðu um fyrir 16 ára nemanda, sem kom vopnaður haglabyssu til skólans í gær, með það að markmiði að myrða bekkjarfélaga sína sem höfðu lagt hann í einelti. Nemandinn var fjarverandi þegar skóladagurinn hófst í gær en kom síðar inn í skólastofu sína með látum og skaut nokkrum skotum í átt að samnemendum og hæfði einn sem liggur nú þung haldinn á sjúkrahúsi. Árásarmaðurinn kallaði þar næst á dreng sem kom við kallið úr felum. Sá baðst fyrirgefningar í tvígang áður en árásarmaðurinn miðaði á hann og skaut en hæfði ekki. Kennari og annar starfsmaður skólans sannfærðu árásarmanninn um að leggja byssuna frá sér og á meðan tókst öðrum í bekknum, 27 nemendum, að koma sér undan. Starfsmönnunum er nú hampað sem hetjum í Bandaríkjunum. Nemandinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, er nú í haldi lögreglu en hann var með nóg af skotum á sér til að skaða fjölda manns. Hann er sagður hafa orðið fyrir einelti í skólanum og hafði ritað á lista nöfn nokkurra nemenda. Þá er hann jafnframt sagður hafa ákveðið í fyrradag að myrða alla á listanum og komst í þeim tilgangi yfir byssu bróður síns. Drengurinn hafði rætt við kunningja sína um að myrða alla þá sem lögðu hann í einelti og í fyrra bjó hann til lista yfir nemendur sem hann vildi skjóta. Skólayfirvöldum var gert viðvart á sínum tíma og hafa þau verið harðlega gagnrýnd fyrir að aðhafast ekkert í málinu.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Fleiri fréttir „Tárin streymdu niður vangann á mér“ Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Sjá meira