Nóg að gera hjá lögreglu 25. desember 2004 00:01
Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í gærkvöld og í nótt, vegna innbrotsþjófa, ölvunaraksturs og kertabrunar. Eldur kviknaði á tveimur heimilum í borginni vegna útikerta í gærkvöld. Annar bruninn varð í fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut um klukkan sex og þurfti að flytja þrjá á slysadeild vegna brunasára og gruns um reykeitrun. Kertið var úti á svölum og náði eldurinn að læsa sig í gluggatjöld svo úr varð mikið bál. Þremur klukkustundum síðar var slökkviliðið aftur kallað út vegna kertabruna á svölum, en þá við Ljósheima. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og skemmdir af hans völdum eru óverulegar. Innbrotsþjófar virðast hafa sætt lagi þegar fólk yfirgaf heimili sín á aðfangadagskvöld. Búið var að stela öllu steini léttara út íbúð í Grafarholti þegar heimilismenn komu úr jólaboði um miðnætti. Í Hólahverfi í Breiðholti var brotist inn í tvær íbúðir í sama stigagangi. Úr annarri íbúðinni höfðu þjófarnir á brott með sér tölvu og kaldan bjór úr ísskápnum, en úr hinni stálu þeir hátölurum, sjónvarpstæki og dvd spilara. Þjófarnir eru ófundnir. Tveir ökumenn voru teknir vegna ölvunaraksturs í borginni í gærkvöld. Annar þeirra vakti athygli starfsmanna Neyðarlínunnar um klukkan hálf sjö, vegna þess hversu erfiðlega honum gekk að leggja bíl sínum og burðast með jólagjafir úr honum. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn var svo drukkinn að hann var vart talandi.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira