Vörður gætir kviksyndis í Kópavogi 28. mars 2005 00:01
Vörður hefur verið settur við fjöruna í Kópavogi þar sem stúlka var hætt komin þegar hún sökk upp undir hendur í kviksyndi. Bæjarstjórinn þakkar guði að ekki fór verr. Ellefu ára stúlka var í lífshættu þegar hún sökk í fjörusandinn neðan við Vesturvör í Kópavogi í fyrradag þegar hún var að leita að skeljum. Björgun á eftir að fylla upp í svæðið með sandi en þangað til er um hreinasta kviksyndi að ræða. Hansína Á Björgvinsdóttir, bæjarstjóri Kópavogi, er slegin. Hún segist líta atburðinn mjög alvarlegum augum og hún þakki guði fyrir að barnið hafi bjargast við þær erfiðu aðstæður sem það hafi verið í og hún líti nánast á það sem kraftaverk. Gripið var til aðgerða í kjölfar fréttar Stöðvar 2 um málið. Maður frá Björgun hefur verið á vakt á svæðinu frá því klukkan ellefu í morgun og í nótt eða á morgun verður fyllt upp í fjöruna. Hansína segir að menn hafi ekki gert sér grein fyrir hættunni, annars hefðu þeir gengið betur frá svæðinu. Nú sé vakt á svæðinu og svo verði fyllt upp í kviksyndið svo hættan verði ekki lengur fyrir hendi. Hansína segir enn fremur að þær hættulegu aðstæður sem hafi skapast verði einungis þegar háfjara sé. Það vilji þannig til á Ísandi að sjórinn sé varhugaverður og þegar háfjara sé skapist oft aðstæður sem séu hættulegar bæði mönnum og málleysingjum. Menn verði að gæta þess að vatnsföll og sjór séu ekki hentug leiksvæði fyrir börn.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Sjá meira