Sendur í sóttkví á lokadegi sóttkvíar: „Þetta er ekki aprílgabb“ Stefán Árni Pálsson skrifar 1. apríl 2020 15:09 Sveinn Birkir getur unnið að heiman eins og sjá má hér á myndinni af heimaskrifstofunni. „
Ég er á síðasta degi í sóttkví í dag. 14 dagar að klárast. Fæ símtal frá rakningarteyminu: „Þú hefur verið útsettur fyrir smiti aftur. Til hamingju, þú hefur unnið aðra 14 daga í sóttkví“ - Þetta er ekki aprílgabb.“ Ég er á síðasta degi í sóttkví í dag. 14 dagar að klárast. Fæ símtal frá rakningarteyminu: "Þú hefur verið útsettur fyrir smiti aftur. Til hamingju, þú hefur unnið aðra 14 daga í sóttkví!"Þetta er ekki aprílgabb. #fml— Sveinn Birkir (@sveinnbirkir) April 1, 2020 Þetta skrifar Sveinn Birkir Björnsson, forstöðumaður Íslandsstofu, í færslu á Twitter og greinir frá því að hann verði hátt í einn mánuð í sóttkví. Lífið heyrði honum hljóðið. „Konan mín greindist nokkuð snemma og við höfum öll fjölskyldan verið í einangrun hér heima. Ég og börnin vorum neikvæð en svo voru börnin farin að sýna einkenni og ég fór því með þau í skimun og þá voru þau bæði orðin jákvæð.“ Hann segir að niðurstöðurnar hafi legið fyrir í gær og þá taka við aðrar tvær vikur af sóttkví hjá Sveini. „Ég fór líka í próf og var neikvæður en það að þau séu orðin jákvæð þá núllast bara út mín sóttkví. Það er bara 7, 9, 13 hvort ég fái þessa veiru. En maður hefur heyrt sögur að einn eða fleiri virðast bara sleppa við þetta. Þetta voru ákveðin vonbrigði að fá þessar fréttir á síðasta degi. Ég hefði getað farið og gert einhvern óskunda af mér á morgun en það verður ekki úr því úr þessu,“ segir Sveinn. Eiginkona hans var talsvert veik til að byrja með en er á batavegi. Börnin tvö eru í raun aðeins með flensu og hefur hann engar áhyggjur.“ Sveinn er búinn að reikna dæmið. „Mér reiknast svo til að þegar sóttkví tvö lýkur verð ég búinn að vera í sóttkví í um tíu prósent af árinu 2020. Ég verð kominn í þrjátíu daga og vantar sex daga til að ná tíu prósentunum,“ segir Sveinn.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Lífið Enginn Óskar til Íslands 2026 Bíó og sjónvarp Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Fleiri fréttir Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Sjá meira