Yfirgefið og þaklaust hús vekur ugg í Laugarneshverfi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. júlí 2016 06:00 Plötur hafa verið settar fyrir gluggana en börn hafa samt sem áður komist inn í húsið og útigangsmenn í kjallarann. Vísir/Eyþór
Enginn hefur búið í húsinu að Hraunteigi 3 í Laugarneshverfinu í níu ár. Hvorki hefur verið hugsað um húsið né lóðina á þessum tíma. „Það hefur ýmislegt gengið á,“ segir Edda Holmberg sem býr í húsinu hliðina. Hún kveður þolinmæðina á þrotum.„Það hefur verið rottugangur á lóðinni og í húsinu. Útigangsfólk hefur komið sér fyrir í kjallaranum og ógæfufólk með sprautur. Því hefur fylgt ónæði og löggan hefur ítrekað þurft að skipta sér af því.“ Eigendur hússins sjást sjaldan. Edda segir þá hafa rifið þakið af húsinu fljótlega eftir að þeir keyptu það. Þannig hafi það staðið síðan. „Börn í hverfinu eru að fara inn í húsið og leika sér. Þetta getur verið stórhættulegt. Þar fyrir utan er þetta lýti í götunni, illgresið vex hér til dæmis yfir í aðra garða,“ segir Edda. Fyrir nokkrum árum hringdi Edda í byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar þegar allar rúður í húsinu voru brotnar. „Það komu starfsmenn frá borginni og settu plötur fyrir gluggana. Ég spurði hvort það ætti ekkert að gera varðandi garðinn og mér var bent á að við nágrannarnir gætum hóað okkur saman í götunni og þrifið og tekið til á lóðinni.“Húsið við HraunteigVísir/EyþórAnnars hefur borgin ekki komið að málinu svo Edda þekki til. Hún vakti athygli á málinu í hópi íbúa Laugarneshverfis á Facebook. Það stóð ekki á viðbrögðum enda virðast margir orðnir þreyttir á drusluskapnum. Heiðar Ingi Svansson, formaður hverfisráðs Laugarneshverfis, hvetur fólk til að senda sér formlegt erindi. „Ég mun taka þetta fyrir á næsta fundi hverfisráðs og við getum þrýst á borgina um einhverjar úrbætur. Þetta ástand hefur varað alltof lengi,“ segir Heiðar. Samkvæmt mannvirkjalögum er heimilt að beita dagssektum allt að fimm hundruð þúsund krónum sé ásigkomulag, frágangi, umhverfi eða viðhaldi húss ábótavant, það stafar hætta af því eða það telst skaðlegt heilsu að mati byggingafulltrúa. Ekki náðist í byggingafulltrúa Reykjavíkurborgar við vinnslu fréttarinnar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. júlí 2016
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Sjá meira