Þjóðverjar eflaust ekki allir kátir með „jólagjöfina“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. desember 2020 13:32 Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins. Almannavarnir Íslensk stjórnvöld telja sig hafa tryggt bóluefni fyrir alla þjóðina og sjá fyrir sér að hægt verði að bólusetja meginhluta þjóðarinnar á næstu mánuðum. Þá telja stjórnvöld að hagsmunum Íslendinga sé betur borgið í samstarfi við hið fjölmenna Evrópusamband. Einnig hefði verið nær ómögulegt að sjá það fyrir í vor að Pfizer ætti eftir að taka forystuna í bóluefnakapphlaupinu.
Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar í dag, þar sem umræða um bóluefni gegn veirunni var í algleymingi. Jafnvel skammtar fyrir 435 þúsund manns Svona er staðan eins og hún lítur út núna: Ríkið er með samninga við sex framleiðendur bóluefna. Tveir þessara samninga hafa verið undirritaðir; við AstraZeneca og Pfizer. Sá þriðji við Janssen verður undirritaður á morgun eða hinn. Fjórði samningurinn verður svo undirritaður við Moderna 31. desember. Endanlega tala bóluefnaskammta frá Moderna liggur hins vegar ekki fyrir. Fundað verður um markaðsleyfi fyrir bóluefnið 6. janúar næstkomandi. „Með þremur samningum, Astra, Pfizer og Janssen verða tryggðir skammtar fyrir alla þjóðina og rúmlega það, eða 376 þúsund, jafnvel 435 þúsund þar sem það er talið að Janssen-bóluefnið þurfi aðeins að gefa einu sinni. Þetta kemur í ljós við útgáfu markaðsleyfis,“ sagði Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins. Hún benti jafnframt á að þegar samið er um bóluefnin er ekki samið um afhendingartíma. Tíu þúsund skammtar af bóluefni Pfizer, sem duga fyrir fimm þúsund manns, eru væntanlegir til landsins 28. desember. Ákveðinn fjöldi skammta frá Pfizer er svo tryggður út mars; 50 þúsund skammtar sem duga fyrir 25 þúsund manns. „Miðað við okkar samninga og að því tilskildu að markaðsleyfi fáist fyrir fyrrgreindum bóluefnum teljum við að hægt verði að bólusetja meginhluta þjóðarinnar á næstu mánuðum,“ sagði Ásta. „Og þegar ég segi næstu mánuðum, það getur verið þrír, fjórir, fimm mánuðir. En við verðum bara að sýna þolinmæði eins og aðrar þjóðir.“ Pfizer mjög langt niðri á listanum fyrr á árinu Líkt og fram hefur komið semur Ísland um bóluefni í gegnum Evrópusambandið. Ásta var spurð að því hvort Ísland hefði getað samið sjálft um skammta fyrir Ísland, sem hefði jafnvel sett landið í lykilstöðu vegna fámennis. Enn fremur hefði þá verið hægt að semja um annað bóluefni en AstraZeneca, sem virðist veita minni vörn en til dæmis bóluefni Pfizer. Ásta benti á að ríki þurfi sjálf að semja um bóluefni. Ríki væru misstór og misöflug. Ráðuneytið hefði þannig talið, og telji enn, að Ísland hefði sterkari samningsstöðu með Evrópusambandinu og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Þá benti Ásta á að möguleg kaup á bóluefnum hefðu verið rædd í vor. Í júní þegar fjármögnun bóluefnakaupa var til umræðu hefðu allir haldið að Sanofi-bóluefnið yrði fyrst á markað. „Pfizer var mjög langt niðri á listanum. Þannig að það lýsir því hversu ótrúlegir hlutir hafa gerst á þessu ári. Það hefur verið mjög erfitt fyrir samningsaðila að vita nákvæmlega hvernig þeir ættu að dreifa eggjunum eða fjármunum milli þessara lyfjafyrirtækja. Astra var talið lengi það fyrsta til að fá markaðsleyfi. […] En við teljum hagsmunum Íslands betur farið í samstarfi við aðra og þessu stóra samstarfi með 446 milljónum í Evrópusambandinu.“ Þá benti Ásta á að nú væru samningafundir í gangi milli ESB og Pfizer um mögulegar viðbætur við samninginn. „Það er of snemmt að segja hversu mikil sú viðbót verður. En allar viðbætur sem ESB nær að semja um munu líka koma til Íslands. Við fáum alltaf hlutfall af þessum samningum,“ sagði Ásta. Þá benti hún á að þessir fyrstu tíu þúsund skammtar sem eru á leiðinni til Íslands hafi verið kallaðir „jólagjöfin“ til ríkjanna – og öll ríki fái jafnstóran skammt. „Þannig að Þjóðverjar fá tíu þúsund og við fáum tíu þúsund. Það eru kannski sumir Þjóðverjar ekkert voðalega glaðir með það.“ Telur misræmi í upplýsingagjöf Þá velti Ásta fyrir sér af hverju það væri svona eftirsóknarvert að kaupa bóluefni fyrir 200 prósent af þjóðinni, líkt og mörg af vestrænum ríkjum hafa gert. Þar má nefna Kanada, sem samkvæmt úttekt Bloomberg hefur tryggt sér bóluefni fyrir rúmlega 500 prósent af íbúum, og þá hafa ríki Evrópusambandsins tryggt sér bóluefni fyrir 172 prósent þjóðar. „Þetta hefur verið gagnrýnt af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og Sameinuðu þjóðunum að ríkari ríki hafa tryggt sér umframmagn á meðan önnur ríki hafa ekki aðgang að neinu bóluefni,“ sagði Ásta. Ásta var einnig innt eftir því af hverju hefur gætt misræmi í því sem stjórnvöld segja og því sem kom fram í umfjöllun fréttaveitunnar Bloomberg. Í úttekt Bloomberg segir að Ísland hafi aðeins tryggt sér bóluefni fyrir 61 prósent íbúa en stjórnvöld segja að bóluefni hafi verið tryggt fyrir 87 prósent. Ásta sagði þetta misræmi í upplýsingagjöf og vissi í raun ekki hvaðan hún kæmi. Hugsanlega liggi misræmi í því hvernig ríki telji samningana og hvenær þeir teljist tryggðir. Einnig sé hugsanlegt að einhver ríki telji Covax-samninga með en þeir samningar eru þó fyrst og fremst hugsaðir fyrir þróunarríki.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Fullvissaði Katrínu um aðgengi Íslands að bóluefni í „góðu símtali“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti símafund með Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um bóluefni gegn kórónuveirunni í morgun. Von der Leyen lýsti fundinum sem farsælum á Twitter í morgun og kvaðst hafa fullvissað forsætisráðherra að Ísland fengi bóluefni fyrir 27. desember. 21. desember 2020 11:20 Segja bóluefni fyrir 87 prósent þjóðarinnar tryggt Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. 20. desember 2020 18:44 Neyðarleyfi í höfn hjá Moderna Bandaríska lyfjaeftirlitið hefur veitt bóluefni Moderna neyðarleyfi í kjölfar einróma niðurstöðu ráðgjafaráðs stofnunarinnar um að mæla með veitingu leyfisins. Yfirvöld hafa gert samninga um kaup á 200 milljónum skammta frá fyrirtækinu. 19. desember 2020 08:18 Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Sjá meira
Fullvissaði Katrínu um aðgengi Íslands að bóluefni í „góðu símtali“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti símafund með Ursulu von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um bóluefni gegn kórónuveirunni í morgun. Von der Leyen lýsti fundinum sem farsælum á Twitter í morgun og kvaðst hafa fullvissað forsætisráðherra að Ísland fengi bóluefni fyrir 27. desember. 21. desember 2020 11:20
Segja bóluefni fyrir 87 prósent þjóðarinnar tryggt Íslensk stjórnvöld hafa þegar tryggt bóluefni sem dugir fyrir 87% þjóðarinnar í gegnum samstarf Evrópuþjóða með samningum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. 20. desember 2020 18:44
Neyðarleyfi í höfn hjá Moderna Bandaríska lyfjaeftirlitið hefur veitt bóluefni Moderna neyðarleyfi í kjölfar einróma niðurstöðu ráðgjafaráðs stofnunarinnar um að mæla með veitingu leyfisins. Yfirvöld hafa gert samninga um kaup á 200 milljónum skammta frá fyrirtækinu. 19. desember 2020 08:18