Sport

„Þetta er það sem mig dreymdi um“

Sindri Sverrisson skrifar
Anton Sveinn McKee hefur keppt á ótalmörgum stórmótum á ferlinum en nú er það nýja atvinnumannadeildin, heimsdeildin, sem hann einbeitir sér að.
Anton Sveinn McKee hefur keppt á ótalmörgum stórmótum á ferlinum en nú er það nýja atvinnumannadeildin, heimsdeildin, sem hann einbeitir sér að. Getty/Iain McGuinness

„Þetta segir mér að það að hafa sagt „bæ“ við vinnuna og farið alla leið í sundinu gæti ekki hafa verið betri ákvörðun,“ segir ólympíufarinn Anton Sveinn McKee eftir frábæran árangur í Búdapest um helgina.

Eftir stanslaust „hark“ til að geta verið afreksmaður í sundi en samt haft í sig og á eru nú breyttir tímar í íþróttinni, segir Anton. Þessi 26 ára gamli sundkappi, sem fer á sína þriðju Ólympíuleika í Tókýó næsta sumar, er einn þeirra sem komist hafa að í ISL, heimsdeildinni í sundi. Í þessari nýju og einu atvinnumannadeild í sundi keppa tíu lið og hver sundmaður getur unnið sér inn umtalsvert vinningsfé á hverju móti.

Þannig vann Anton sér til að mynda inn 6.600 Bandaríkjadali um helgina, jafnvirði um 920 þúsunda króna, með því að vinna 100 og 200 metra bringusund, ná 2. sæti í 50 metra bringusundi og 4. sæti í 4x100 metra fjórsundi.

Vegna kórónuveirufaraldursins fer keppnistímabilið í heimsdeildinni nú allt fram í Búdapest og keppir Anton næst á móti þar 2.-3. nóvember. Alls keppir hann á fjórum mótum áður en átta efstu liðin komast áfram í undanúrslit, og fjögur lið komast svo alla leið í úrslitin.

Anton Sveinn McKee er stoltur fulltrúi Íslands á stórmótum en í heimsdeildinni keppir hann fyrir kanadíska félagið Toronto Titans.Getty/Ian MacNicol

„Þetta er framtíðin hjá sundinu. Sundið hefur alltaf snúist um fjögurra ára hring vegna Ólympíuleikanna, varðandi athygli og fjármögnunarmöguleika. Það hefur verið mjög erfitt að fóta sig en nú þegar þessi atvinnumannadeild er komin, þá er athyglin hjá mér á því að skara fram úr í henni. Svo er bara gaman á fjögurra ára fresti að keppa á Ólympíuleikum, en fókusinn mun fara á þessa deild. Hún gerir okkur kleyft að vera atvinnumenn,“ segir Anton, ánægður með að njóta nú afraksturs margra ára vinnu.

„Ég fékk þannig séð enga peninga, og það eina sem hélt manni á floti voru afreksstyrkir frá ÍSÍ. En það var erfitt að byggja framtíð á þeim. Bankabókin var ekki í fallegri stöðu. Sem betur fer er þessi deild núna komin og þegar heimurinn verður eðlilegur aftur eftir Covid ættu að vera tíu mót á hverju tímabili fyrir mig að keppa á, með fleiri tækifærum til að afla tekna. Þetta er það sem mig dreymdi um að sund gæti orðið og stundum þarf maður að klípa sig til að fatta að maður sé hluti af því. Þetta breytir sundi til frambúðar.“

Getur stolið stigum af lakari keppendum

Anton tilheyrir liði Toronto Titans og syndir þar meðal annars með Svíanum Erik Persson sem einnig er sterkur bringusundsmaður, og átti Norðurlandamet sem Anton sló um helgina. Anton var í þriðja sæti yfir það sundfólk sem safnaði flestum stigum fyrir Toronto Titans, og í 12. sæti alls, með 28,5 stig.

Á mótum ISL geta keppendur „stolið“ stigum af lakari keppendum með því að koma nægilega löngu á undan þeim í bakkann. Það tókst Antoni til að mynda í 200 metra bringusundinu, með því að vera yfir 5 sekúndum á undan síðasta keppanda og taka þar með 1 stig sem fæst fyrir að vera í 8. og síðasta sæti. Anton fékk því 10 stig í stað 9 fyrir sigur í því sundi, og safnaði alls 28,5 stigum fyrir sitt lið sem varð í 3. sæti af fjórum liðum um helgina. Fjögur lið keppa á hverju móti og fær Toronto nýja andstæðinga í næstu keppni.

View this post on Instagram

Toronto Titans 2020 Anton McKee

A post shared by Toronto Titans (@torontotitans_isl) on

Eftir framgöngu sína um helgina á Anton nú öll þrjú Norðurlandametin í bringusundi, í 25 metra laug. Sjálfsagt er hann með metin í 50 metra laug í sigtinu en það verður að bíða betri tíma, bókstaflega, að ná þeim.

Anton á nú áttunda besta tíma sögunnar í 200 metra bringusundi í 25 metra laug, eftir að hafa synt á 2:01,73 mínútum um helgina, og tólfta besta tímann í 100 metra bringusundinu sem hann synti á 56,30 sekúndum.

„Þetta segir mér að það að hafa sagt „bæ“ við vinnuna og farið alla leið í sundinu gæti ekki hafa verið betri ákvörðun. Þetta gefur manni mikið sjálfstraust og hvatningu í að gera enn betur, setja markið enn hærra og halda áfram að klífa upp þennan lista,“ segir Anton. 

Anton Sveinn McKee í loftinu á æfingu.Mike Lewis

Hann stórbætti Íslandsmet sín í 100 og 200 metra sundinu. Í 50 metra bringusundinu synti hann svo á 26,29 sekúndum, eða 15/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti sínu, rétt eftir að hafa sett metið í 200 metra sundinu.

Meira á tankinum

Anton er eini íslenski íþróttamaðurinn sem tryggt hefur sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó, en það gerði hann í 200 metra bringusundi á HM í fyrra. Árangurinn um helgina gefur góð fyrirheit fyrir leikana þó að enn séu 8-9 mánuðir í þá.

„Eftir EM 2019 [í 25 metra laug í Glasgow í desember] var markmiðið að ná ólympíulágmarkinu í 100 metra bringusundinu. Rétt áður en Covid skall á bjó maður sig undir að geta „tekið út“ smá framfarir aftur. En svo kom Covid og þá fór ég í það að keyra upp æfingamagnið aftur því það var ekkert mót á næstunni til að sýna hvar ég stæði. Ég vissi því vel að það var eitthvað inni á tankinum. Sem betur fer var lítil truflun hjá mér vegna Covid. Ég var þó þrjár vikur án laugar.

Vitandi þetta, að ég hefði lagt á mig hellings vinnu í upphafi árs og farið aftur út til Bandaríkjanna [Anton hefur búið í Bandaríkjunum og á Íslandi síðustu ár] í ágúst og náð frábærum æfingum, setti sjálfstraustið í gang. Ég náði svo fullri hvíld fyrir mótin hérna og bjóst við að geta synt hratt undir þessa tíma. Kannski ekki alveg svona á fyrsta mótinu svo þetta kemur skemmtilega á óvart, en ég veit að það er meira á tankinum og það verður að koma á næsta móti,“ segir Anton.


Tengdar fréttir

27 manna Ólympíuhópur fyrir ÓL í Tókýó

Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee er eini Íslendingurinn sem hefur tryggt sér keppnisrétt á ÓL í Tókýó 2021 en þeim gæti fjölgað þegar líður nær leikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×