Sport

Dag­skráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt

Aron Guðmundsson skrifar
FH mætir Þrótti Reykjavík í mikilvægum leik í Bestu deild kvenna núna fyrir hádegi.
FH mætir Þrótti Reykjavík í mikilvægum leik í Bestu deild kvenna núna fyrir hádegi. Anton/Vísir

Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í dag og langt fram á nótt. Mikilvægir leikir framundan, bæði hér heima sem og út í heimi.

Fjörið hefst fyrir hádegi því klukkan ellefu hefst leikur FH og Þróttar Reykjavíkur í efri hluta Bestu deildar kvenna. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Island.

Klukkan eitt er röðin svo komin að slag Leeds United og Manchester United í enska boltanum. Rígurinn mikill milli liðanna og verður sýnt beint frá leiknum á Sýn Sport.

Á sama tíma tekur Brighton á móti Crystal Palace á Sýn Sport 3 og á Sýn Sport 5 verður leikur Bournemouth og Sunderland sýndur.

Klukkan hálf tvö hefst svo útsending frá leik Jaguars og Texans í NFL deildinni. Sá leikur sýndur á Sýn Sport 2.

Enski boltinn heldur síðan áfram að rúlla klukkan hálf fjögur þegar að Nottingham Forest tekur á móti Englandsmeisturum Arsenal í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Á sama tíma verður sýnt frá leik Gladbach og Hoffeinheim í þýska boltanum á Sýn Sport Viaplay.

NFL deildin á síðan sviðið fram eftir kvöldi og inn í nóttina. Browns og Ravens mætast í beinni útsendingu klukkan fimm á Sýn Sport 2 og á Sýn Sport 3 veðrur hægt að fylgjast með öllu því helsta í öllum leikjum á NFL Red Zone. Klukkan hálf níu hefst svo bein útsending frá leik Raiders og Bills.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×