Veður

Suð­austan kaldi með rigningu og slyddu sunnan og vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi nálgast landið á morgun.
Kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi nálgast landið á morgun. Vísir/vilhelm

Suðaustan kaldi með smá rigningu eða slyddu gengur yfir landið sunnan- og vestanvert í dag. Mun hægara og bjartviðri verður hins vegar norðaustan til.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun nálgist kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi. Hvessi þá úr austri og verði hvassast við suðurströndina, jafn vel staðbundinn stormur um kvöldið.

„Lítilsháttar væta víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan. Áframhaldandi hvassir vindar og úrkomusamt fram á sunnudag, þegar lægir loks og rofar til, en fremur hlýtt miðað við árstíma.

Þeir sem hyggja á ferðalög næstu daga ættu að fylgjast vel með veðurspám og færð.“

Spákort Veðurstofunnar fyrir hádegið eins og það leit út í morgun.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Gengur austan 13-20 m/s með rigningu á S-verðu landinu, hvassast syðst og jafn vel stormur þar um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig. Hægara og þurrt fyrir norðan og hiti kringum frostmark.

Á föstudag: Norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum með talsverðri rigningu S- og A-lands, en annars úrkomuminna. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Útlit fyrir norðaustanhvassviðri, jafn vel storm með talsverðri rigningu á A-helming landsins, en annars úrkomuminna og milt í veðri.

Á sunnudag: Stíf norðaustanátt NV-til, en annars mun hægari vindar. Væta í flestum landshlutum og fremur hlýtt í veðri.

Á mánudag: Líklega hæg norðanátt með skúrum éljum, en úrkomulítið syðra og fremur svalt veður.

Á þriðjudag: Líkur á vaxandi austanátt með rigningu og hlýnandi veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×