Opinn ársfundur Samorku verður haldinn í dag. Fundurinn hefst klukkan níu og er í beinni útsendingu hér á Vísi.
Efni fundarins eru orkuskipti frá hinum ýmsu hliðum. Hvað þarf til að ná fram þeim orkuskiptum sem til þarf fyrir árið 2030? Hvað þarf til að skipta alveg út jarðefnaeldsneyti fyrir okkar endurnýjanlegu orkugjafa? Hver er framtíðin í orkuskiptum á hafi og í flugi?
Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um á fundinum en í tilkynningu frá Samorku segir að orkuskipti í samgöngum séu mikilvægur hluti af því að standast alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum miðað við Parísarsamninginn.
Horfa má á fundinn hér fyrir neðan og þar fyrir neðan má nálgast dagskrá fundarins.
Dagskrá:
- 09.00 - Byrjun
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, býður gesti velkomna
- 09.05 - Ávarp ráðherra
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- 09.15 - Fyrstu og önnur orkuskiptin
Helgi Jóhannesson, formaður stjórnar Samorku
- 09.30 - Þriðju orkuskiptin: Innviðir og orkuþörf
Auður Nanna Baldvinsdóttir og Sigurjón Kjærnested, orkuskiptahóp Samorku
- 10.00 - Framtíðarþróun samgangna
Colin McKerracher, Bloomberg New Energy Finance
- 10.20 - Orkuskiptin eru hagkvæm
Ingvar Freyr Ingvarsson, Samorku
- 10.40 - Svona hleður landinn: Niðurstaða rafbílarannsóknar Samorku
Scott Lepold, GEOTAB og Kjartan Rolf Árnason, orkuskiptahóp Samorku.
- 11.20 - Framtíð orkuskipta á hafi: Electric Port Study
Caroline Kamerbeek, DNV-GL
- 11.40 - Framtíð orkuskipta í flugi
Olav Mosvold Larsen, Avinor
- 12.00 - Græn orka verður grænt eldsneyti
Morten Stryg, Dansk Energi