Erlent

Til­felli kórónu­veira­smita á heims­vísu komin yfir 25 milljón

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá Kolkata á Indlandi þar sem starfsmaður á vegum borgarinnar sótthreinsar almenningsrými.
Frá Kolkata á Indlandi þar sem starfsmaður á vegum borgarinnar sótthreinsar almenningsrými. AP/Bikas Das

Tilfelli kórónuveirusmita á heimsvísu eru nú komin yfir 25 milljón, samkvæmt talningu Reuters. Mestur vöxtur smita er á Indlandi.

Tilfellum fer fjölgar jafnt og þétt víða um heim, en þó hvergi hraðar en í Indlandi og virðist miðpunktur faraldursins nú vera kominn þangað.

Þannig greindust 78.761 tilfelli í Indlandi í dag, sem er mesta fjölgun smita á einum degi frá því að 77.299 greindust með kórónuveiruna á einum degi um miðjan júlí í Bandaríkjunum.

Alls eru tilfellin á heimsvísu orðin 25.074.751 og segir í frétt Reuters að þar með séu tilfellin orðin fimmfalt fleiri en tilfelli alvarlegra inflúensutengdra sjúkdóma á ári hverju, samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.

Alls hafa yfir 840 þúsund manns látist af völdum kórónuveirunnar. Sem fyrr segir er mikill vöxtur í veirusmitum í Indlandi, sem aðeins er á eftir Bandaríkjunum og Brasilíu hvað varðar fjölda heildarsmita.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×