Erlent

Þorri atburðarásarinnar í Kenosha fangaður á myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Sambærileg mótmæli hafa átt sér staða víða um Bandaríkin á undanförnum vikum.
Sambærileg mótmæli hafa átt sér staða víða um Bandaríkin á undanförnum vikum. AP/David Goldman

Lögreglan í Kenosha í Wisconsin í Bandaríkjunum handtók í gær Kyle Rittenhouse, sem er sautján ára, fyrir að skjóta tvo til bana og særa þriðja í mótmælum í borginni á dögunum. Hann stendur frammi fyrir því að vera ákærður fyrir morð.

Blaðamenn Milwaukee Journal Sentinel segja Rittenhouse hafa áhuga á starfsemi vopnaðra hópa, svokallaðra „militia“ eins og það kallast á ensku, og fyrr um kvöldið hafði hann sagst vera í borginni til að verja fólk og eigur fyrir skemmdum.

Á Facebook og Reddit höfðu hægri sinnaðir aðilar kallað eftir því að vopnaðir menn streymdu til Kenosha og tækju jafnvel lögin í sínar hendur.

Umfangsmikil mótmæli hafa staðið yfir eftir að Jacob Blake var skotinn margsinnis í bakið af lögreglu.

Aðdragandi mótmælanna

Mikil mótmæli hafa átt sér stað í Kenosha að undanförnu og hafa þau snúist upp í óeirðir á kvöldin. Tilefni mótmælanna er að lögregluþjónn skaut, Jacob Blake, svartan mann ítrekað í bakið fyrr í vikunni.

Blake er lamaður fyrir neðan mitti eftir að lögreglumaður skaut hann margsinnis í bakið í borginni Kenosha í Wisconsin. Lögreglan í Kenosha hefur veitt litlar upplýsingar um atburðarásina en segja útkallið hafa komið til vegna tilkynningar um heimilisdeilur.

Sjá einnig: Þjóðvarðlið kallað út vegna mótmæla í kjölfar þess að lögregla skaut svartan mann

Myndbönd af vettvangi sýna að Blake lenti í stympingum við lögregluþjóna og á einum tímapunkti kallaði lögregluþjónn á Blake að sleppa hníf. Vitni segjast þó ekki hafa séð hníf og enginn hnífur er sjáanlegur á myndböndum.

Eftir að Blake hafði verið skotinn með rafbyssu gekk hann að bílstjórahurð bíls síns og teygði sig inn í bílinn. Lögregluþjónn togaði í bol hans og skaut hann margsinnis í bakið. Þrír synir Blake voru í bílnum.

Lögreglan hefur sagt að hnífur hafi verið í bílnum en ekki hefur þeirri spurningu verið svarað hvort að lögregluþjónarnir á vettvangi vissu af því. Skotunum var hleypt af þremur mínútum eftir að lögregluþjónar mættu á vettvang.

Aðfaranótt gærdagsins bárust svo fréttir af því að maður vopnaður riffli hefði skotið tvo til bana og sært þann þriðja á mótmælunum. Stór hluti atburðarásarinnar virðist hafa verið fangaður á myndbönd.

Friðsöm mótmæli hafa breyst í óeirðir á tímum og skemmdir hafa verið unnar í Kenosha.AP/Morry Gash

Á hlaupum undan manni

Eitt myndband sýnir mann, sem líklegast er Rittenhouse, á hlaupum undan öðrum manni. Sá reynir að kasta hlut í Rittenhouse en hittir ekki. Eftirförin leiðir þá á bakvið nokkra bíla og þaðan heyrast nokkur byssuskot.

Annað myndband sýnir Rittenhouse stöðva vegna bíls sem er fyrir framan hann, snúa sér við og skjóta einu skoti að manninum sem eltir hann. Sá heldur þó áfram að hlaupa að honum og fjórum skotum til viðbótar er hleypt af. Við það fellur sá sem var að elta Rittenhouse í götuna.

Hann hverfur úr mynd í skamma stund og fleiri skot heyrast. Því næst kallar maður, sem byrjaður er að hlúa að þeim sem varð fyrir skoti, og segir fólki að hringja á neyðarlínuna. Rittenhouse hleypur á brott og virðist sem hann segi í símann: „Ég skaut mann“.

Myndbönd sýna svo næst hvernig Rittenhaus hleypur eftir götu með hóp manna á eftir sér. Hann fellur í götuna og nokkrir menn hlaupa í átt að honum. Þar sem Rittenhouse reyndi að setjast upp skaut hann tvisvar í átt að einum sem nálgaðist hann en hitti ekki. Sá hleypur á brott.

Annar virðist slá Rittenhouse í höfuðið með hjólabretti þar sem hann situr enn í götunni og reyna að taka byssuna af honum. Byssan er þó í ól og Rittenhouse er enn með tak á henni og heypir af.

Þá reynir einn til viðbótar að hlaupa að Rittenhouse en sá verður fyrir skoti í hendina. Myndbönd sýna að sá maður var vopnaður skammbyssu.

Hér ræðir AP fréttaveitan við mann sem tók myndband af því þegar Rittenhouse skaut tvo menn.

Rittenhouse stendur upp og hleypur aftur af stað. Lögregluþjóna ber þá að garði og Rittenhouse gengur í átt til þeirra með hendur á lofti. Í fjarska heyrist meiri skothríð.

Fyrstu tveir lögreglubílarnir óku fram hjá Rittenhouse. Myndband sýnir hann ganga í átt að þeim þriðja en snúa við, rétt áður en myndbandið endar.

Var handtekinn í öðrum bæ, í öðru ríki

Rittenhouse var svo handtekinn næsta dag, miðvikudag. Svo virðist sem að lögregluþjónar hafi sleppt honum, eða aldrei handsamað hann, því hann var handtekinn í um 30 kílómetra fjarlægð, í heimabæ sínum Antioch, sem er í nágrannaríkinu Illinois.

Eins og áður segir stendur Rittenhouse frammi fyrir því að vera ákærður fyrir morð og verður réttað yfir honum sem fullorðnum einstaklingi, samkvæmt lögum Kenosha.

Ofbeldið á þriðjudagskvöldið leiddi til þess að tvö þúsund þjóðvarðliðar voru sendir til borgarinnar. Mótmæli í gærkvöldi eru sögð hafa farið friðsamlega fram.

Hér er annað myndband sem sýnir atburði í Kenosha og hluta viðtals við fógeta bæjarins, David Beth.

Vilja ekki fleiri vopnaða menn

Meðlimir þjóðvarðliðsins segja enga þörf á fleiri vopnuðum mönnum í borginni. Þeir hafi ekki sömu þjálfun og fleiri byssur á götunum hjálpi ekki til við að tryggja öryggi fólks.

Fógetinn David Beth sagði á blaðamannafundi í gær að vopnaðir menn, sem komu til borgarinnar vegna mótmælanna, hafi kallað eftir því að fógetinn gerði þá að fulltrúum sínum. Hann sagðist aldrei ætla að gera það. Mál Rittenhouse sé skýrt dæmi um af hverju það sé hræðileg hugmynd.

Beth gat þó ekki svarað spurningum blaðamanna um af hverju fjöldi myndbanda hefur sýnt lögregluþjóna spjalla við þessa þungvopnuðu menn. Á einu myndbandi gefur lögregluþjónn vopnuðum manni vatn og annar segir:

„Við kunnum að meta að þið séuð hérna. Svo sannarlega.“

Enn eitt myndband frá Kenosha. Það sýnir að einn mannanna sem var á eftir Rittenhouse var vopnaður. Þar er einnig rætt við aðra vopnaða menn sem voru á svæðinu.

Hér má sjá stuttan hluta viðtals sem maður sem vinnur fyrir hinn mjög svo hægri sinnaða miðil, Daily Caller, tók við Rittenhouse á þriðjudagskvöldið.


Tengdar fréttir

Tveir skotnir til bana í Kenosha

Tveir voru skotnir til bana og einn er alvarlega særður á mótmælum vegna máls Jacob Blake í Kenosha í Bandaríkjunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×