Sara hefur aldrei unnið Toomey en tekst það hjá henni núna? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2020 13:15 Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair Toomey. Mynd/Instagram/@tiaclair1 og @sarasigmunds
Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair Toomey mætast á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í dag en báðar hafa þær unnið þrjú Sanctional mót á ferlinum. Engin kona hefur náð að vinna fjögur slík mót. Tia-Clair Toomey hefur unnið heimsmeistaratitilinn þrjú undanfarin ár og öll þrjú Sanctional mótin sem hún hefur tekið þátt í. Sara hefur unnið þrjú af sex slíkum mótum. Það sem gerir þetta einvígi þessara frábæru CrossFit kvenna enn meira spennandi er að Sara er á svakalegri siglingu um þessar mundir eftir þrjá glæsilega sigra á síðustu mánuðum. Það hefur líka verið fjallað um þetta einvígi í fjölmiðlum. Sara vann tvö Sanctional mót, í Dúbaí og í Dublin og gerði líka betur en allir á „The Open“ sem er opni hluti undankeppni heimsleikanna. Þessi byrjun Söru á tímabilinu er ein sú besta hjá CrossFit konu í sögunni en aðalprófið er að reyna sig á móti heimsmeistaranum sjálfum. Sara og Tia-Clair Toomey hafa keppt á tveimur öðrum Sanctional mótum auk þess að mætast oft á sjálfum heimsleiknum. Sara hefur aldrei náð að vinna Toomey, hvorki á heimsleiknum né á mótunum tveimur.Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair Toomey á heimsleikum:2015: Tia-Clair Toomey í 2. sæti - Sara í 3. sæti2016: Tia-Clair Toomey í 2. sæti - Sara í 3. sæti2017: Tia-Clair Toomey heimsmeistari - Sara í 4. sæti2018: Tia-Clair Toomey heimsmeistari - Sara þurfti að hætta vegna meiðsla (37. sæti)2019: Tia-Clair Toomey heimsmeistari - Sara í 19. sæti Sara var aftur á móti ekki eins langt á eftir Tiu-Clair Toomey þegar þær mættust síðast á Rogue Invitational mótinu miðað við hversu langt hún var frá henni á Wodapalooza mótinu fyrir ári síðan. Sara var þriðja á Wodapalooza mótinu á sama tíma í fyrra og þá 112 stigum á eftir Tiu-Clair Toomey. Þegar þær mættust aftur á Rogue Invitational rúmum tveimur mánuðum síðar þá munaði 76 stigum á þeim og Sara náði líka að vinna Toomey í þremur greinum sem henni tókst ekki á hinu mótinu. Sara endaði í öðru sæti á Rogue Invitational og var þá á undan löndum sínum Anníe Mist Þórisdóttur og Katrínu Tönju Davíðsdóttur. Tvær greinar fara fram á Wodapalooza mótinu í dag.
CrossFit Tengdar fréttir Það vantar bara eitt á svakalegan afrekalista Söru Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir hefur unnið ófá mótinu á sínum glæsilega ferli en draumurinn hennar hefur enn ekki ræst. 20. desember 2019 08:00 Sara: Finnst ennþá eins og þetta sé of gott til að vera satt Margir bíða spenntir eftir því hvort Sara Sigmundsdóttir geti haldið sigurgöngu sinni áfram á stórmótunum í CrossFit. Sara er nú komin til Flórída þar sem hún keppir á Wodapalooza CrossFit mótinu í Miami. 14. febrúar 2020 10:00 Augnablikið þegar Sara skipti yfir í keppnisgírinn náðist á myndband Sara Sigmundsdóttir er ekki bara ein besta CrossFit kona heims því hún er einnig ein sú allra vinsælasta. Lifandi og glaðleg framkoma hennar heillar flesta upp úr skónum á mótum og annars staðar. 7. febrúar 2020 09:00 Meira en sex milljónir í boði fyrir Söru og hinar stelpurnar á Wodapalooza Það verður glæsilegt verðlaunafé á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í Miami á morgun. 19. febrúar 2020 11:00 Sara stolt af árangrinum: Fór að treysta eigin tilfinningu betur og æfa meira með öðrum Íslenska CrossFit drottningin Sara Sigmundsdóttir gerði upp magnaða frammistöðu sína á síðustu mánuðum síðasta árs þar sem hún afrekaði það sem engin CrossFit kona hefur gert áður. 10. janúar 2020 10:30 Wodapalooza CrossFit mótinu stillt upp sem einvígi á milli Söru og Tiu-Clair Toomey Sara Sigmundsdóttir var á mikilli sigurgöngu síðustu mánuði ársins 2019 en nú er komið að fyrstu CrossFit keppni hennar á árinu 2020. 18. febrúar 2020 09:30 Sara rak þjálfarann sinn og fór að þjálfa sig sjálfa með frábærum árangri Sara Sigmundsdóttir hefur staðið sig frábærlega að undanförnu og er búin að vinna hvert CrossFit mótið á fætur öðru. Hún segir í viðtali í hlaðvarpsþætti Snorra Björnssonar að lykillinn að velgengni sinni að undanförnu var stór ákvörðun sem hún tók síðasta haust. 29. janúar 2020 09:30 Mest lesið Rashford líka skilinn eftir heima Enski boltinn Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Fótbolti Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Pochettino farinn frá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Martin og félagar tóku sópinn með sér Í beinni: Fram - ÍA | Skora Skagamenn hjá bestu vörninni? Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Blikar geta minnkað forskot Víkinga Í beinni: HK - Valur | Valsmenn reyna að stöðva sigurgöngu HK Pochettino farinn frá Chelsea Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Ísland vann þrjú gull og fjögur silfur á NM í frjálsum Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona Mo Salah ætlar að vinna titla með Liverpool á næstu leiktíð Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Ráðherrar reiðir út í leikmann í frönsku deildinni Kane aðeins fjórum stigum frá mögnuðu meti Rondey Robinson Snjór til vandræða í Ítalíuhjólreiðunum Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Rashford líka skilinn eftir heima Tveir leikir á Akureyri og bikarmeistararnir lentu á móti Fylki Sagður vera búinn að henda Henderson út úr enska landsliðinu Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Meiðsli settu strik í reikninginn og biðin eftir fyrsta sigrinum lengist Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Dagskráin í dag: Stórleikur á Kópavogsvelli Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Sjá meira
Það vantar bara eitt á svakalegan afrekalista Söru Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir hefur unnið ófá mótinu á sínum glæsilega ferli en draumurinn hennar hefur enn ekki ræst. 20. desember 2019 08:00
Sara: Finnst ennþá eins og þetta sé of gott til að vera satt Margir bíða spenntir eftir því hvort Sara Sigmundsdóttir geti haldið sigurgöngu sinni áfram á stórmótunum í CrossFit. Sara er nú komin til Flórída þar sem hún keppir á Wodapalooza CrossFit mótinu í Miami. 14. febrúar 2020 10:00
Augnablikið þegar Sara skipti yfir í keppnisgírinn náðist á myndband Sara Sigmundsdóttir er ekki bara ein besta CrossFit kona heims því hún er einnig ein sú allra vinsælasta. Lifandi og glaðleg framkoma hennar heillar flesta upp úr skónum á mótum og annars staðar. 7. febrúar 2020 09:00
Meira en sex milljónir í boði fyrir Söru og hinar stelpurnar á Wodapalooza Það verður glæsilegt verðlaunafé á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í Miami á morgun. 19. febrúar 2020 11:00
Sara stolt af árangrinum: Fór að treysta eigin tilfinningu betur og æfa meira með öðrum Íslenska CrossFit drottningin Sara Sigmundsdóttir gerði upp magnaða frammistöðu sína á síðustu mánuðum síðasta árs þar sem hún afrekaði það sem engin CrossFit kona hefur gert áður. 10. janúar 2020 10:30
Wodapalooza CrossFit mótinu stillt upp sem einvígi á milli Söru og Tiu-Clair Toomey Sara Sigmundsdóttir var á mikilli sigurgöngu síðustu mánuði ársins 2019 en nú er komið að fyrstu CrossFit keppni hennar á árinu 2020. 18. febrúar 2020 09:30
Sara rak þjálfarann sinn og fór að þjálfa sig sjálfa með frábærum árangri Sara Sigmundsdóttir hefur staðið sig frábærlega að undanförnu og er búin að vinna hvert CrossFit mótið á fætur öðru. Hún segir í viðtali í hlaðvarpsþætti Snorra Björnssonar að lykillinn að velgengni sinni að undanförnu var stór ákvörðun sem hún tók síðasta haust. 29. janúar 2020 09:30