Manchester United sækir um leyfi til að breyta Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2020 14:30 Sir Alex Ferguson stúkan á Old Trafford. Getty/Matthew Ashton
Manchester United hyggur á breytingar á heimavelli sínum Old Trafford og hefur nú sótt um leyfi fyrir þeim. Forráðamenn Manchester United vilja setja upp rimlagirðingar í einu horni vallarins þar sem áhorfendur fá tækifæri til að standa á meðan leik stendur. Verkefnið er hluti af baráttumálinu um að bjóða aftur upp á möguleikann á að standa á fótboltavöllum Englands undir slagorðinu „safe standing“ eða „örugg stæði“. Á áætlun er að skipta út sætum í norðaustur horni vallarins. Á árum áður þá stóðu áhorfendur á fótboltaleikjum á Englandi en eftir Hillsborough slysið hræðilega þar sem 96 stuðningsmenn Liverpool krömdust til bana þá var markvisst unnið að því að skipta öllum stæðum út fyrir sæti. Á síðustu árum hafa menn leita leiða til að bjóða aftur upp á stæði en nú með öryggi áhorfenda að leiðarljósi. Nýr leikvangur Tottenham býður upp á „safe seating“ eða „örugg sæti“ sem er svæði á vellinum sem auðveldlega væri hægt að breyta í örugg stæði fái ensku liðin leyfi til að bjóða upp á slíkt svæði fyrir standandi áhorfendur. Wolves hefur einnig útbúið stæði á Molineux vellinum fyrir standandi áhorfendur. Leyfi fyrir að vera með standandi áhorfendur er á réttri leið innan kerfisins og er mjög líklegt að örugg stæði verði samþykkt á næstunni. Fyrir nokkrum dögum kom út skýrsla frá stjórnvöldum þar sem slíkir rimlar, eins og Manchester United vill setja upp á Old Trafford, eru taldir hafa jákvæð áhrif á öryggi áhorfanda á leikvöllunum.
Enski boltinn Hillsborough-slysið Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira