Körfubolti

Fimmti sigur­leikur Indiana í röð og San Antonio hafði betur gegn Miami

Anton Ingi Leifsson skrifar
Marco Belinelli og hans félagar unnu góðan sigur í nótt.
Marco Belinelli og hans félagar unnu góðan sigur í nótt.

Tveir leikir fóru fram í NBA-körfuboltanum í nót. Miami tapaði á heimavelli gegn San Antonio og Indiana vann átta stiga sigur á Denver.

San Antonio hafði betur gegn Miami 107-102 en LaMarcus Aldridge var stigahæstur hjá San Antonio með 21 stig. DeMar DeRozan bætti við 20 stigum, níu fráköstum og níu stoðsendingum.

Bam Adebayo var stigahæstur í liði Miami með 21 stig og tók hann einnig sextán fráköst. Hann gaf svo sex stoðsendingar.







Í Denver töpuðu heimamenn fyrir Indiana, 107-115. Doug McDermott gerði 24 stig fyrir Indiana en Nikola Jokic skoraði 30 stig fyrir Denver sem og að taka tíu fráköst.

Úrslit næturinnar:

Indiana - Denver 115-107

Miami - San Antonio 102-107

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×