Innlent

38 milljónir til að stöðva olíu­leka úr El Grill­o

Atli Ísleifsson skrifar
Seyðisfjörður. El Grillo er 10 þúsund lesta breskt olíubirgðaskip sem var sökkt árið 1944 í árás þýskra flugvéla.
Seyðisfjörður. El Grillo er 10 þúsund lesta breskt olíubirgðaskip sem var sökkt árið 1944 í árás þýskra flugvéla. Vísir/Vilhelm

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu umhverfis- og auðlindaráðherra að grípa til aðgerða til að stöðva olíuleka úr skipsflakinu El Grillo sem liggur á botni Seyðisfjarðar.

Í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu segir að ráðist verði í aðgerðirnar á næstu vikum og sé áætlaður kostnaður vegna þeirra um 38 milljónir króna.

„El Grillo er 10 þúsund lesta breskt olíubirgðaskip sem var sökkt árið 1944 í árás þýskra flugvéla. Árið 1952 var olíu dælt úr skipinu og aftur árið 2001 þegar rúm 60 tonn af hreinni olíu náðust úr því en útreikningar þá bentu til þess að 10 – 15 tonn af olíu sætu ennþá eftir í flakinu. Síðan hefur reynslan sýnt að olía leki úr flakinu þegar sjór hlýnar á sumrin. í könnunarleiðangri Landhelgisgæslunnar í október sl. kom í ljós að töluverður olíuleki var úr opi við olíutanka skipsins vegna tæringar. Því er mikilvægt að bregðast við lekanum hið fyrsta til að fyrirbyggja neikvæð umhverfisáhrif í firðinum.

Þær aðgerðir sem nú verður ráðist í felast í því að loka opinu með því að steypa yfir það. Þá verður loka komið fyrir í steypunni sem nýta mætti síðar ef til þess kemur að dæla þurfi úr tankinum. Stefnt er að því að ráðast í aðgerðirnar nú á vormánuðum 2020 áður en sjór hlýnar og verður verkefnið á höndum Landhelgisgæslunnar,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×