Breska dagblaðið Mail on Sunday greinir frá og hefur upp úr tölvupóstum prinsins sem það kveðst hafa undir höndum. Blaðið hefur unnið nokkrar fréttir upp úr gögnunum á vef sínum í dag og síðustu daga.
Icesave var vörumerki innlánsreikninga á netinu sem Landsbankinn bauð í Bretlandi og í Hollandi. Þessi þjónusta stóð viðskiptavinum í þessum löndum til boða þar til hrunið varð í október 2008.
Í frétt blaðsins segir að Andrés hafi óskað eftir því að vera upplýstur um stöðuna á Icesave-málinu. Breska ríkisstjórnin stóð þá í samningaviðræðum við íslenska ríkið um endurgreiðslu þess síðarnefnda á milljarðaskuld vegna Icesave. Samningur milli ríkjanna þess efnis var svo felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu í mars árið 2010 og aftur árið 2011. Árið 2013 sýknaði EFTA-dómstóllinn íslenska ríkið af öllum kröfum ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, í Icesave-málinu.

Ætla má að þar sé átt við ráðstefnu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar (WEF) sem haldin er í Davos í Sviss ár hvert. Ekki er að sjá að Jóhanna hafi verið viðstödd ráðstefnuna í Davos árið 2010 en það var hins vegar Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands.
Svar við fyrirspurninni um stöðu samningaviðræðanna var svo sent á prinsinn um miðjan febrúar, að því er segir í fréttinni. Síðdegis sama dag á Andrés að hafa áframsent skjal ráðuneytisins á Jonathan Rowland, son kaupsýslumannsins Davids Rowlands, þar sem sá fyrrnefndi ráðleggur þeim síðarnefnda að stíga varlega til jarðar.
„Amanda segir merki um að við ættum að leyfa lýðræðinu að hafa sinn framgang áður en þú stígur skrefið,“ hefur Mail on Sunday eftir Andrési prins í tölvupóstinum til Jonathans.
Áðurnefndir Rowland-feðgar keyptu Kaupþing í Lúxemborg eftir hrun. Bankanum var skipt upp í tvo hluta, annars vegar Kaupþing sem varð síðar að Havilland-bankanum, og hins vegar félagið Pillar Securitisation S.a.r.l. Það var einmitt Andrés prins sem opnaði Havilland-bankann við formlega athöfn í október árið 2009 en Rowland-fjölskyldan hefur veitt honum efnahagsráðgjöf í gegnum tíðina.
David er meðal ríkustu manna Bretlands og einn stærsti einstaki styrktaraðili breska Íhaldsflokksins. Hann er mjög umdeildur og á vafasama fortíð í viðskiptalífinu í Bretlandi. Kastljós fjölmiðla hefur beinst að Andrési prins síðustu vikur vegna vináttu hans við viðskiptajöfurinn Jeffrey Epstein og ásakanir sem komið hafa fram komið hafa fram gegn Andrési um að hann hafi nauðgað 17 ára bandarískri stúlku, Virginiu Giuffre, á árunum 2001 og 2002. Tilkynnt var fyrr í þessum mánuði að Andrés myndi hætta að sinna opinberum skyldum sínum fyrir konungsfjölskylduna um ófyrirsjáanlega framtíð.
Fréttin hefur verið uppfærð.