Fær átta og hálfa milljón í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar Anton Egilsson skrifar 26. janúar 2017 18:43 Hæstiréttur dæmdi konunni bætur vegna fjártjóns og miska Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur dæmt konu sem var sagt upp starf sínu hjá Umboðsmanni skuldara átta og hálfa milljón króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Konunni var sagt upp störfum fyrirvaralaust í maí árið 2015 sökum þess að hún hafði haft afskipti af þremur málum fyrrverandi eiginmanns síns sem höfðu verið til meðferðar hjá embættinu. Var tekið fram í dómnum að þótt afskipti konunnar af málum fyrrverandi eiginmanns hennar hefðu verið brot gegn ríkum trúnaðarskyldum hefði konan í starfi sínu ekki tekið ákvarðanir í málunum og ekki lægi fyrir að hún hefði notfært sér upplýsingarnar í eigin þágu eða hefði miðlað þeim til annarra.Ekki talið varða fyrirvaralausa brottvísun úr starfiRáðningarsamningi konunnar sem hafði starfað hjá Umboðsmanni skuldara í um fimm ára sekið þegar málið kom upp var sagt upp fyrirvaralaust. Taldi Hæstiréttur að þær misgerðir sem konunni höfðu verið gefnar að sök hefðu ekki getað haft í för með sér fyrirvaralausan brottrekstur. Af þeim sökum hefði riftun ráðningarsamnningsins verið ólögmæt. Sagði Hæstiréttur jafnframt að misgerðir konunnar hefðu með réttu lagi ekki varðað öðru en að hún sætti áminningu og héldi starfinu ef annað og meira kæmi ekki til. Var íslenska ríkinu sökum hinnar ólögmætu uppsagnar gert að greiða konunni átta og hálfa milljón króna í bætur vegna fjártjóns og miska. Lesa má dóm Hæstaréttar í heild sinni hér.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Skafið og saltað Veður Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Sjá meira