Hugmyndir að betri Reykjavík: Hegningarhúsið verði baðhús og útikörfuboltavöllur í Laugardal Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. júní 2016 17:43 Hegningarhúsið við Skólavörðustíg er orðið rúmlega 140 ára en komin er fram hugmynd að breyta því í baðhús. vísir/gva
Vefurinn Betri Reykjavík var opnaður fyrir rúmri viku og hafa borgarbúar nú sent inn hátt í 400 hugmyndir. Hægt er að senda inn hugmyndir til 15. júní næstkomandi en alls mun borgin setja 450 milljónir króna til framkvæmda á þeim hugmyndum sem koma inn í ár. Hægt er að sjá hvernig skipting fjármuna verður eftir hverfum inni á vef Reykjavíkurborgar. Kosið er um hugmyndirnar inni á Betri Reykjavík. Þrjár hugmyndir standa upp úr í augnablikinu í vinsældum en sú vinsælasta með 216 „likes“ er um útikörfuboltavöll í Laugardalnum. Hugmyndin er að gerður verði körfuboltavöllur með sex körfum við hliðina á brettagarðinum gegnt Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Síðan hafa 198 látið sér líka við hugmynd um knattspyrnuhús á ÍR-svæðinu í Skógarseli. Þá nýtur hugmyndin um að gera Hegningarhúsið að baðhúsi nokkurra vinsælda einnig en hún er með 111 „likes.“ Hegningarhúsinu var lokað á miðvikudaginn en nýtt fangelsi á Hólmsheiði verður tekið í notkun síðar á árinu. Húsið er 140 ára gamalt og löngu úrelt sem fangelsi en ekki er víst hvað kemur í staðinn. Hugmyndin er að gert verði baðhús að austur-evrópskri fyrirmynd. Gömlu fangaklefarnir yrðu saunuklefar og þá yrði komið fyrir köldum pottum. „Í garðinum væri hægt að láta rjúka úr sér á veturna og sóla sig á sumrin. Þar væri einnig hægt að stunda hugleiðslu, jóga og Mullersæfingar. Baðhús Reykjavíkur myndi bjóða upp á heilsárskort á sanngjörnu verði. Heilsulind fyrir alla og viðbót í sundmenninguna,“ segir á vefnum um hugmyndina.
Mest lesið Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Innlent Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Innlent Dóttirin í Súlunesi ákærð Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Erlent Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Innlent „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Fleiri fréttir Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Sjá meira