María Birta þakklát - Leitar að húsnæði fyrir Jólamarkaðinn 7. desember 2012 16:37 Eins og sjá má var verslunin Manía tómleg eftir að starfsmenn, eigendur og kaupmenn á Laugavegi björguðu vörunum. MYND/VALLI „
Ég er svo rosalega þakklát," segir María Birta Bjarnadóttir, eigandi fata- og skóverslunarinnar Maníu. „Ég vona að ég geti haft samband við allt þetta yndislega fólk sem hjálpaði okkur, þessa engla." Eldur kom upp á annarri hæð í húsnæði á Laugavegi 51 fyrr í dag en Manía er þar til húsa. Mikinn reyk lagði frá húsinu, þó svo að lítill eldur hafi verið sjáanlegur. Mikill eldsmatur var aftur á móti í húsinu. Eldurinn var ekki í sjálfri versluninni og því gátu María og aðrir hreinsað út vörurnar. María segir að það hafi verið skelfilegt að sjá reykjarmökkinn stíga út úr húsinu: „Þetta var hrikalegt, eins og skýstrókur sem steig út úr húsinu." Fljótlega hafði hópur fólks safnast saman fyrir utan verslunina. Nokkrir verslunareigendur og starfsmenn þeirra hjálpuðu Maríu við að bjarga vörum út úr versluninni. „Maðurinn frá húðflúrstofunni hérna á Laugaveginum, Skinnlist, hann var eins og harðstjóri hérna fyrir utan. Skipaði fólki til og frá." María segir að vonir um öfluga verslunarhelgi hafi í raun bjargað versluninni. Hún var með sex starfsmenn í vinnu þegar eldurinn kom upp og unnu þeir hörðum höndum við að bjarga vörunum. Hætta var á að fötin yrðu fyrir skemmdum enda lak mikið vatn milli hæða. „Ég er nokkuð viss um að okkur hafi tekist að bjarga öllum vörunum," segir María. „Þetta var ótrúlegt, allir hlupu til og frá með fötin." Það var sannarlega mikið í húfi fyrir Maríu og starfsmenn hennar. Þau voru í óða önn að undirbúa Jólamarkað og því var lagerinn fullur af vörum. Nú er hins vegar óvíst með markaðinn og leitar María nú að húsnæði. „Já, ég er að leita að húsnæði fyrir Jólamarkaðinn og ég tek við öllum ábendingum," segir María að lokum.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira