Hornsíli í Mývatni í sögulegri lægð Svavar Hávarðsson skrifar 29. mars 2016 06:00 Aldrei hefur hornsílastofninn verið minni en sumarið 2015. mynd/RAMÝ
Hornsílastofninn í Mývatni hefur verið í dýpri lægð undanfarin tvö ár en nokkru sinni síðan vöktun á stofninum hófst árið 1989. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu sýndu mælingar óhemju magn blábaktería í Mývatni tvö síðastliðin sumur. Blábakteríur eru náttúrulegar í lífríki vatnsins en aukning þeirra undanfarna áratugi er talin skýrt merki ofauðgunar í vatninu. En fleira veldur áhyggjum en blábakteríugróðurinn, enda hefur hann víðtæk áhrif á allt vistkerfið í vatninu. Árni Einarsson, forstöðumaður RAMÝ, bendir á að hornsílið er miðlægt í fæðuvef Mývatns og því hefur hornsílastofninn í Mývatni verið vaktaður frá 1989. Stofninn hefur sveiflast öfganna á milli á þessu tímabili, en aldrei hafa talningar sýnt jafn mikla lægð í stofninum og nú. Í stöðluðu veiðiátaki í fyrrasumar veiddust aðeins 319 hornsíli, en á undanförnum árum hefur verið algengt að þau séu þrjú til átta þúsund – árin 2002 til 2004 veiddust sjö til fjórtán þúsund síli með sömu aðferðum við rannsóknir.Árni Einarsson t.v.Sýnilegustu áhrif þessa eru að toppöndum hefur fækkað mikið á Mývatni, en Árni segir, aðspurður um samhengi á milli blábakteríugróðursins og fækkunar hornsílis, að hornsílastofninn hafi vissulega aldrei verið minni en nú, og geti því ekki hafa orsakað bakteríublómann eins og sumar vistfræðikenningar gera ráð fyrir, aðrir fiskstofnar, bleikja og urriði, eru líka of fáliðaðir, og bætir við að áhrif hornsíla hafa verið rannsökuð nokkuð í Mývatni og niðurstaðan sé alltaf hin sama. Þau virðast hafa frekar lítil áhrif á sveifluganginn í lífríki Mývatns. Þau eru a.m.k. ekki drifkrafturinn í honum. „Sú hugmynd að fiskar stjórni bakteríublóma í vötnum á við um sum vötn en ekki næringarrík vötn eins og Mývatn. Mýflugulirfurnar virðast hins vegar hafa áhrif á sveiflur í bakteríublómanum, sem gæti bent til þess að Mývatn þurfi litlar breytingar á næringarefnaflæði, sem mýlirfurnar hafa áhrif á, og það geti skipt sköpum,“ segir Árni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 29. mars.
Tengdar fréttir Skólp veldur offjölgun baktería í Mývatni Óhemju magn blábaktería í Mývatni tvö síðastliðin sumur er skýrt merki ofauðgunar í vatninu af mannavöldum. Niðurstöður mælinga í fyrrasumar sýndu tólffalt það magn sem talið er óhóflega mikið í leiðbeiningum Alþjóða heilbri 15. mars 2016 07:00 Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira
Skólp veldur offjölgun baktería í Mývatni Óhemju magn blábaktería í Mývatni tvö síðastliðin sumur er skýrt merki ofauðgunar í vatninu af mannavöldum. Niðurstöður mælinga í fyrrasumar sýndu tólffalt það magn sem talið er óhóflega mikið í leiðbeiningum Alþjóða heilbri 15. mars 2016 07:00