Fyrstu mörk Kolbeins í rúm þrjú ár: Sérstök tilfinning að skora eftir þennan tíma Arnar Geir Halldórsson skrifar 15. júlí 2019 10:00 Þungu fargi af Kolbeini létt vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson stimplaði sig af krafti inn í sænska boltann um helgina þegar hann skoraði tvö mörk í 3-0 sigri AIK á Elfsborg á laugardag. Síðustu ár hafa verið Kolbeini erfið þar sem meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn og voru þetta fyrstu mörk Kolbeins í félagsliðafótbolta síðan hann skoraði eitt mark fyrir franska félagið Nantes 10.febrúar 2016 í 3-4 sigri á Bordeaux í bikarkeppninni. Síðasta deildarmark Kolbeins kom skömmu áður, þann 23.janúar 2016, einnig gegn Bordeaux en þá í 2-2 jafntefli í Ligue 1. Raunar hefur Kolbeinn ekki spilað ýkja marga leiki síðan þá, nema með landsliðinu en Kolbeinn hefur nú komið við sögu í fimm leikjum síðan hann gekk í raðir AIK og var þetta jafnframt hans annar leikur í byrjunarliði. „Þetta er frábær tilfinning. Ég hef beðið eftir þessu í þrjú ár og þetta hefur ekki verið auðvelt. Um leið og ég skoraði fann ég að það var þess virði að ganga í gegnum þessa erfiðu tíma,“ sagði Kolbeinn í samtali við sænska fjölmiðla eftir leik. Á meðan þessi markaþurrð Kolbeins hjá félagsliðum hefur staðið yfir hefur hann engu að síður gert fimm landsliðsmörk en Kolbeinn er næstmarkahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 23 mörk í 50 A-landsleikjum.
Sænski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Sjá meira