„Ég kynnist sjálfri mér alveg uppá nýtt“ Stefán Árni Pálsson skrifar 4. janúar 2019 14:30 Dísa Dungal er einkaþjálfari og jógakennari. „
Ég byrjaði að stunda jóga árið 2010 og síðan þá var það alltaf draumurinn að fara í jóganám. Án þess að fatta það þá átti ég mjög erfitt með að rífa mig út úr hversdagslífinu og einbeitti mér rosalega að því að vinna og æfa,“ segir Dísa Dungal, 26 ára einkaþjálfari, sem fór í jógakennaranám til Kosta Ríka síðasta sumar og stefnir nú að því að halda jóga retreat í Gvatemala. „Einn daginn kom vinkona mín, sem er jógakennari, upp að mér og sagðist vera fara aðstoða við kennslu í jógakennaranámi í Kosta Ríka og sagði mér að koma með. Þarna fannst mér lífið vera að færa mér eitthvað upp í hendurnar sem ég hafði beðið eftir svo ég sló til án þess að hugsa mig tvisvar um. Ég nennti ekki einu sinni að lesa mig til, ég fór bara. Ef það hefði ekki verið fyrir hana þá hefði ég mögulega aldrei uppfyllt þennan draum,“ segir Dísa sem hefur starfandi einkaþjálfari og hóptímakennari hjá Hreyfingu síðan 2015. Dísa segir að jóga hafi breytt lífi hennar. „Ég kynnist sjálfri mér alveg uppá nýtt, bæði andlega og líkamlega. Eins og margir kannast við var ég mjög föst í mínum daglegu venjum og var ekkert að reyna að losa mig út úr þeim vítahring. Ég var svo sannarlega ekki spennt yfir því að komast ekki í ræktina í heilan mánuð og geta ekki ráðið því hvað ég borðaði. Þarna bjó ég inni í frumskógi í heilan mánuð og stundaði jóga og hugleiðslu alla daga. En það var þetta sem ég þurfti til þess að öðlast jafnvægi á öllum sviðum lífsins.“Dísa hefur fundið sig vel í jóga.Hún segist hafa fundið mikla breytingu á sér eftir að hún kom heim frá Kosta Ríka. „Ég fann rosalega mikið fyrir áhrifunum þarna úti á hvernig ég vildi lifa hérna heima. Ég elska að búa á Íslandi og er afar þakklát fyrir að búa í krúttlega samfélaginu okkar en við sjáum kannski ekki áhrifin sem umhverfið hefur á okkur því við erum svo vön þeim. Þegar við sjáum þau ekki þá getum við ekki vitað hvernig við eigum að lifa í jafnvægi með þeim. Við Íslendingar eru vanir hörðum vetrum, eilífu myrkri og miklu vinnuálagi. Jógað, hugleiðslan og lífstíllinn sem ég lærði hefur verið lykillinn hingað til.“ Dísa segist í kjölfarið hafa stofnað fyrirtækið Topp.is sem hafi verið langþráður draumur að stofna fyrirtæki í heilsubransanum. „Ég fann aldrei kraftinn til þess að taka skrefið. Það var ekki fyrr en mér sjálfri hefði tekist að lifa í fullkomnu jafnvægi, að ég gæti leiðbeint öðrum á sama farveg. Inná heimasíðunni má finna allar upplýsingar um jógaferðina, skoða myndir af staðnum og aðstöðu og það er einnig allskonar skemmtilegur fróðleikur um heilsu, uppskriftir og líkamsrækt.“Styttist í kynningarkvöldið í Skeifunni.Í sumar verður síðan haldið tveggja vikna Jóga Wellness retreat í Gvatemala, nánar tiltekið 3. Júní við eitt fallegasta stöðuvatn heims eins og Dísa segir sjálf. „Megin tilgangurinn með þessari jógaferð er að leyfa okkur að losna frá öllum skyldum og lifa áreynslulausu lífi í náttúrunnar paradís. Þarna færðu hvíld frá hversdagslífinu, endurnærist á líkama og sál með því að iðka jóga og hugleiðslu með lífrænu, sérelduðu mataræði. Við viljum bjóða uppá dásamlega upplifun í örmum náttúrunnar ásamt því að læra ýmislegt um lífstílsvenjur og heimspeki jógans.“ Þann 12. janúar ætlar Dísa að bjóða alla sem vilja velkomna í opinn kynningartíma í rými Yogashala í Skeifunni 7, klukkan 11:30. „Þarna munum við skapa huggulegt andrúmsloft, kynna ferðina nánar og flæða saman gegnum jóga og slökun í lokin.“
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira