Tuttugu gráður í kortunum næstu daga Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. júlí 2019 07:23 Hitinn á eftir að hækka eftir því sem líður á vikuna, en hér ber að líta hitakortið fyrir seinni part morgundagsins. Veðurstofan
Það eru prýðilegar hitatölur í kortunum fyrir allt land út vikuna. Útlit er fyrir „tiltölulega rólega austlæga átt“ í dag, eins og veðurfræðingur á Veðurstofunni kemst að orði. Hann áætlar að sama skapi að það verði væntanlega skýjað að mestu á landinu og skúrir á víð og dreif. Hitinn verður auk þess á bilinu 7 til 15 stig í dag og hlýjast verður á suðvesturhorninu. Aftur á móti verður hlýjast á Norðausturlandi á morgun eftir nokkuð viðvarandi kuldaskeið á þeim slóðum í sumar. Það verður jafnframt áfram róleg austlæg átt á morgun, nema við suðurströndina þar sem vindur gæti farið yfir 10 m/s. Þurrt og bjart veður um landið norðaustanvert og þar verður væntanlega hlýjast á morgun, eða allt að 18 til 19 stig. Meira af skýjum í öðrum landshlutum og skúrir á stöku stað. Veðurstofan áætlar að hitinn muni hækka eftir því sem líður á vikuna. Búist er við því að hitinn nái allt að 20 stigum frá miðvikudegi og eitthvað inn í helgina. Þessu mun þó fylgja einhver úrkoma.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Austlæg átt 3-8 m/s, bjart með köflum, en skúrir á stöku stað. Austan 8-13 með suðurströndinni og rigning af og til. Hiti víða 12 til 18 stig. Á miðvikudag:Suðaustan 5-10, en 10-15 syðst á landinu. Rigning með köflum um landið sunnanvert, hiti 10 til 15 stig. Þurrt og bjart norðantil með hita að 20 stigum. Á fimmtudag:Suðaustlæg eða breytileg átt 3-10. Bjart með köflum norðan og vestanlands, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti 13 til 20 stig. Súld á Suðausturlandi og Austfjörðum og svalara. Á föstudag og laugardag:Hæg suðlæg átt og skýjað, en úrkomulítið. Hiti 11 til 15 stig. Bjart á köflum á Norður- og Austurlandi og stöku skúrir síðdegis, hiti að 20 stigum. Á sunnudag:Sunnanátt með súld og rigningu, en þurrt og hlýtt norðaustantil á landinu.
Veður Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Fleiri fréttir Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Sjá meira