Viðskipti innlent

Tekur við starfi fram­kvæmda­stjóra Sam­hjálpar

Atli Ísleifsson skrifar
Vörður Leví Traustason og Valdimar Þór Svavarsson.
Vörður Leví Traustason og Valdimar Þór Svavarsson. Samhjálp
Stjórn Samhjálpar hefur ráðið Valdimar Þór Svavarsson í starf framkvæmdastjóra samtakanna. Hann mun hefja störf á morgun, 1. nóvember.

Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að Valdimar sé með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptafræðibraut Háskóla Íslands og BA gráðu í félagsráðgjöf frá sama skóla. Þá hafi hann einnig lokið ICF vottuðu markþjálfunarnámi auk menntunar í áfalla- og uppeldisfræðum.

Valdimar Þór tekur við starfinu af Verði Leví Traustasyni sem lætur af störfum vegna aldurs. Vörður Leví gegndi starfinu frá árinu 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×