Körfubolti

Martin stoð­sendinga­hæstur eftir fyrstu um­ferðina í Euro­Leagu­e

Anton Ingi Leifsson skrifar
Martin í leiknum í gær.
Martin í leiknum í gær. vísir/getty
Martin Hermannsson fór á kostum í fyrsta leik sínum í Euroleague í gær er Alba Berlín vann sigur á Zenit frá Pétursborg í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Alba lenti í engum vandræðum með Rússana á heimavelli sínum í Þýskalandi í gærkvöldi en munurinn á liðunum varð að lokum tuttugu stig, 85-65.

Martin gaf níu stoðsendingar í fyrstu umferðinni en að auki skoraði hann sjö stig.







Enginn leikmaður gaf fleiri stoðsendingar en Martin í 1. umferðinni en næstur kom Facundo Campazzo sem leikur með stórliði Real Madrid.

Hann gaf átta stoðsendingar en næstur leikur Alba í Eurolegue er gegn Anadolu Efes frá Tyrklandi á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×