Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Framarar hafa daðrað við fallið en nú er komið að því

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
Þorgrímur Smári Ólafsson var níu mörkum frá því að skora hundrað deildarmörk á síðustu leiktíð.
Þorgrímur Smári Ólafsson var níu mörkum frá því að skora hundrað deildarmörk á síðustu leiktíð. Vísir/Bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins sextán daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að öðru liðinu í spá okkar.

Spá Vísis fyrir Olís deild karla 2019-20

1. sæti

2. sæti

3. sæti

4. sæti

5. sæti

6. sæti

7. sæti

8. sæti

9. sæti

10. sæti - (26. ágúst)

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson er farinn til Aftureldingar.Vísir/Bára
Íþróttadeild spáir Fram ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar. Ef spáin rætist fellur Fram eftir tæplega aldarfjórðung í efstu deild.

Síðan Fram varð Íslandsmeistari 2013 hefur liðið verið í neðri hluta deildarinnar og oft daðrað við fallið. Inn á milli hafa þó komið góðir tímar. Fram komst í undanúrslit Olís-deildarinnar 2017 og bikarúrslit árið eftir. Í fyrra var Fram í fallbaráttu allt fram í lokaumferðina og endaði í 10. sæti með 15 stig.

Líkt og síðustu ár hefur Fram misst marga sterka leikmenn milli tímabila. Í sumar hurfu lykilmenn á borð við Viktor Gísla Hallgrímsson, Þorstein Gauta Hjálmarsson og Andra Þór Helgason á braut og Fram hefur ekki fyllt þeirra skörð.

Guðmundur Helgi Pálsson er glúrinn þjálfari og hefur unnið gott starf hjá Fram við erfiðar aðstæður. Hans stærsta verkefni verður að ná meiri stöðugleika í leik Fram en munurinn á bestu og verstu frammistöðu liðsins er alltof mikill. Á góðu dögunum getur Fram unnið flest lið en á þeim vondu er Fram lélegasta lið deildarinnar.



Komnir/Farnir:


Komnir:

Kristinn Hrannar Bjarkason – Afturelding

Svanur Páll Vilhjálmsson – Víkingur

Stefán Darri Þórsson – Alcobendas, Spánn

Hallur Kristinn Þorsteinsson – Haukar á láni

Farnir:

Bjarki Lárusson – Óvíst

Andri Þór Helgason – Stjarnan

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson – Afturelding

Þorgeir Bjarki Davíðsson – HK

Viktor Gísli Hallgrímsson – GOG, Danmörk

Ægir Hrafn Jónsson er kletturinn í vörn Fram.Vísir/Daníel
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Framarar enduðu í 10. sæti á síðustu leiktíð, þremur stigum fyrir ofan fallsæti og þremur stigum frá sæti í úrslitakeppninni. Ekket lið í deildinni tapaði færri boltum og Framliðið var mjög ofarlega í vörðum skotum varnarmanna og vörðum vítum hjá markvörðum.

Sóknarleikur Fram 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 10. sæti (25,8)

Skotnýting - 5. sæti (58,3%)

Vítanýting - 4. sæti (76,1%)

Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (59)

Stoðsendingar í leik - 12. sæti (7,7)

Tapaðir boltar í leik - 1. sæti (7,3)

Vörn og markvarsla Fram 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 8. sæti (27,0)

Hlutfallsmarkvarsla - 7. sæti (30,3%)

Varin víti - 3. sæti (15)

Stolnir boltar - 10. sæti (58)

Varin skot í vörn - 2. sæti (76)

Lögleg stopp í leik - 11. sæti (15,8)

Örvhenti hornamaðurinn Arnar Snær Magnússon.Vísir/Daníel
Líklegt byrjunarlið Fram í vetur

Markvörður - Lárus Helgi Ólafsson - 32 ára

Vinstra horn - Kristinn Hrannar Bjarkason - 24 ára

Vinstri skytta - Þorgrímur Smári Ólafsson - 29 ára

Miðja - Stefán Darri Þórsson - 25 ára

Hægri skytta - Svavar Kári Grétarsson - 24 ára

Hægra horn - Arnar Snær Magnússon - 25 ára

Lína - Valdimar Sigurðsson - 25 ára

Varnarmaður - Ægir Hrafn Jónsson - 40 ára

Aron Gauti skoraði 41 mark í Olís-deildinni á síðasta tímabili.vísir/bára
Fylgist með

Aron Gauti Óskarsson (f. 1996) fékk ásamt Svavari Kára Grétarssyni það hlutverk að fylla skarð Arnars Birkis Hálfdánssonar í hægri skyttustöðunni hjá Fram á síðasta tímabili. Það reyndist þeim ofviða enda skarðið sem Arnar skildi eftir sig stórt og mikið.

Aron Gauti átti þó nokkra góða leiki og sýndi að það er ýmislegt í hann spunnið. Hann verður aftur í stóru hlutverki í vetur og þarf að skila góðu verki ef ekki á illa að fara hjá Fram.

Guðmundur Helgi Pálsson er að hefja sitt fjórða tímabil sem þjálfari Fram.Vísir/Bára
Þjálfarinn

Guðmundur Helgi Pálsson steig inn í brunarústir hjá Fram sumarið 2016 þegar tveir þjálfarar voru hættir og flestir lykilmenn liðsins horfnir á braut. Hann barði í brestina á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari meistaraflokks og kom Fram í undanúrslit Olís-deildarinnar. Ári seinna komst liðið í bikarúrslit.

Guðmundur, sem lék með Fram um aldamótin, er að hefja sitt fjórða tímabil með liðið og nú reynir á hann sem aldrei fyrr að halda Fram í deild þeirra bestu.



Hvað segir sérfræðingurinn?„Ég held að það sé mjög fróðlegt tímabil fram undan hjá Fram. Ég hef ákveðnar áhyggjur af þeim vegna þess sem ég hef séð til þeirra í haust. Þeir virka ekki alveg upp á tíu,“ segir Guðlaugur Arnarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Framliðið.

„Ég sá þá spila í Ragnarsmótinu og það eru æfingarleikir og allt þannig en ég veit ekki hvernig þetta fer hjá þeim. Þeir misstu sterka pósta og hafa fengið lítið inn á móti. Gummi Páls er búinn að vera lengi með liðið og það hefur verið dapurt gengi síðustu ár. það eru viðvörunarbjöllur í gangi í Safarmýrinni,“ sagði Guðlaugur.

Fram varð Íslandsmeistari karla í handbolta vorið 2013.Mynd/Valli
Hversu langt er síðan að Fram ...

... varð Íslandsmeistari: 6 ár (2013)

... varð deildarmeistari: Aldrei

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 6 ár (2013)

... varð bikarmeistari: 19 ár (2000)

... komst í bikarúrslit: 1 ár (2018)

... komst í úrslitakeppni: 2 ár (2017)

... komst í undanúrslit: 2 ár (2017)

... komst í lokaúrslit: 6 ár (2013)

... féll úr deildinni: 26 ár (1993)

... kom upp í deildina: 23 ár (1996)

Gengi Fram í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil

2018-19  10. sæti í deildinni

2017-18  10. sæti í deildinni

2016-17  6. sæti í deildinni

2015-16  7. sæti í deildinni

2014-15  8. sæti í deildinni

2013-14  5. sæti í deildinni

2012-13  3. sæti í deildinni

2011-12  5. sæti í deildinni

Gengi Fram í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil

2018-19  Ekki í úrslitakeppni

2017-18  Ekki í úrslitakeppni

2016-17  Undanúrslit

2015-16  Átta liða úrslit

2014-15  Átta liða úrslit

2013-14  Ekki í úrslitakeppni

2012-13  Íslandsmeistari

2011-12  Ekki í úrslitakeppni

Fram hefur ekki gengið vel á undirbúningstímabilinu.Vísir/Daníel
Að lokum

Fram verður væntanlega í baráttu við nýliðana úr Kópavoginum og Grafarvoginum um að halda sér í deildinni. Fram missti marga sterka leikmenn í sumar og frammistaðan á undirbúningstímabilinu gefur ekki mikla ástæðu til bjartsýni. Fram hefur tapað öllum leikjum sínum með a.m.k. sex marka mun.

Fram ætti að geta spilað fína vörn en skarðið sem Þorsteinn Gauti skilur eftir sig í sóknarleiknum verður vandfyllt. Þá verður Fram að fá meira frá örvhentu skyttunum sínum en á síðasta tímabili.

Fram hefur áður afsannað hrakspár og þá hjálpar að reynslan í liðinu er mikil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×