Innlent

Handtekinn vegna líkamsárásar og brota á vopnalögum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Annar maður var vistaður í fangageymslu vegna minniháttar líkamsárásar.
Annar maður var vistaður í fangageymslu vegna minniháttar líkamsárásar. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann vegna líkamsárásar og brota á vopnlalögum. Maðurinn var í vímu og vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að yfirheyra hann, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Ekki eru veittar frekari upplýsingar um eðli hinna meintu brota.

Þá var einn vistaður í fangageymslu í dag vegna rannsóknar á minniháttar líkamsárás. Maðurinn var einnig með fíkniefni í fórum sínum. Málið er í rannsókn.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×