Erlent

Sprengi­efni talin vera á vegum mót­mælenda í Hong Kong

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Mótmælendur í Hong Kong.
Mótmælendur í Hong Kong. getty/Kyle Lam
Lögreglan í Hong Kong rannsakar nú hvort að sprengiefnafarmur sem fannst í gær tengist mótmælunum sem hafa farið fram síðan um miðjan júní.

Lögreglan segir þetta stærsta fund TATP spreniuefnisins sem hún hefur nokkurn tímann fundið. Annars konar vopn og dreifirit fyrir mótmælin fundust í gær.

Um helgina er búist við fjölmennum mótmælum í Hong Kong, bæði hjá stuðningsmönnum og gagnrýnendum Kína.

27 ára gamall maður var handtekinn í tengslum við fundinn og er hann að sögn lögreglu sjálfstæðissinni.

Lögreglumenn fundu sprengiefnafarminn í vöruhúsi í Tsuen Wan hverfinu á ellefta tímanum að staðartíma á föstudagskvöld.

Framsalsfrumvarp blæs sjálfstæðisbaráttuhópum byr undir báða vængi

Að sögn kínverska miðilsins South China Morning Post fundust tvö kíló af TATP efninu sem og tíu bensínsprengjur, einhvers konar sýra, hnífar og stálstangir, gasgrímur og verndargleraugu.

Alick McWhirter, yfirmaður sprengiefnadeildar lögreglunnar í Hong Kong, sagði í samtali við South China Morning Post: „TATP er vel þekkt efni og er mjög óstöðugt og hættulegt. Ég held það sé alveg öruggt að þetta sé stærsti fundur efnisins í Hong Kong.“

Hann sagði nokkurn tíma taka að færa og rannsaka efnið það sem það væri á mismunandi framleiðslustigum og það væri stöðug áskorun.

Auðvelt er að búa til TATP og er hægt að gera það úr efnum sem auðvelt er að nálgast. Efnið var notað m.a. í árásunum á London árið 2005 og í árásunum á París 2015.

Á sama stað fundust fánar og dreifirit sem mótmæla framsalsfrumvarpinu og stuttermabolur með merki sjálfstæðishreyfingarinnar Hong Kong National Front.

Maðurinn sem var handtekinn í tengslum við málið hefur ekki verið nafngreindur opinberlega. Enn er verið að yfirheyra hann en hann hefur ekki verið ákærður enn sem komið er.

Hong Kong National Front sagði í tilkynningu sem dreift var á Telegram forritinu að maðurinn sé meðlimur hópsins en að sprengiefnin hefðu ekkert með hópinn að gera.

Stepehn McDonell, fréttaritari BBC í Hong Kong, segir handtökuna geta verið túlkaða sem merki um það að innan sjálfstæðisbaráttuhópa séu einstaklingar sem tilbúnir séu til að grípa til ofbeldis.

Mótmælin hófust um miðjan júní vegna frumvarps um framsal sem. Ef samþykkt, myndi heimila yfirvöldum í Hong Kong að framselja einstaklinga til Kína.

Lögregla hrekur mótmælendur út úr verslunarmiðstöð.getty/ Anthony Kwan
Andstæðingar frumvarpsins segja það grafa undan sjálfstæði dómskerfis Hong Kong og gæti verið notað gegn þeim sem hafa gagnrýnt kínversk yfirvöld.

Eftir nokkurra vikna fjöldamótmæli var frumvarpið dregið til baka en mótmælin héldu áfram þrátt fyrir það og krefjast mótmælendur nú aukins lýðræðis og hafa þeir lýst áhyggjum sínum yfir því að verið sé að grafa undan frelsi Hong Kong.

Tugir þúsunda mótmælenda leituðu út á götur borgarinnar síðasta sunnudag og kom til nokkurra átaka.

Hong Kong var bresk nýlenda þar til 1997 og er nú hluti af Kína, en hefur þó eigið dómskerfi og önnur lög. Þetta veitir Hong Kong ákveðið sjálfstæði.

Mótmælendur sem styðja kínversk yfirvöld ætla að safnast saman í vikunni til að sýna yfirvöldum í Hong Kong og lögreglunni stuðning.


Tengdar fréttir

Áfram mótmælt í Hong Kong

Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong í dag. Mótmælin fóru fram í borginni Sha Tin sem liggur við landamæri Kína og Hong Kong.

Ekkert táragas til Hong Kong

Stjórnvöld á Bretlandi ákváðu í gær að banna sölu á öllum verkfærum sem óeirðalögreglumenn nota, til að mynda táragasi, til Hong Kong. Sömuleiðis var kallað eftir rannsókn á átökum lögreglu og mótmælenda í kínverska sjálfstjórnarhéraðinu.

Stjórnvöld í Hong Kong fresti framsalsfrumvarpi

Stuðningur á þingi og í stjórnmálasamfélaginu við frumvarp stjórnvalda í Hong Kong um að heimila framsal til meginlands Kína minnkar og ráðgjafar Carrie Lam, leiðtoga sjálfstjórnarhéraðsins, ráðleggja henni að fresta atkvæðagreiðslu.

Leggja hið umdeilda frumvarp ekki fram á ný

Frumvarp stjórnvalda í kínverska sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong um að heimila framsal til meginlands Kína er nú "dautt“. Þetta sagði Carrie Lam, æðsti stjórnandi borgarinnar, í gær. Áður hafði hún sagt að frumvarpið myndi "deyja á næsta ári“.

Enn mótmælt í Hong Kong

Mótmælin í Hong Kong hafa vakið athygli á heimsvísu en um er að ræða stærstu mótmæli í sögu sjálfsstjórnarhéraðsins. Mótmælin snúa að fyrirhugaðri lagabreytingartillögu um framsal fanga til Kína.

Vilja stilla til friðar í Hong Kong sem fyrst

Sérstök skrifstofa Kommúnistaflokks Kína í höfuðborginni Peking um málefni Hong Kong og Macau fordæmdi í gær áhlaup sem mótmælendur í Hong Kong gerðu á þinghús sjálfstjórnarhéraðsins á mánudag.

Tugir þúsunda mótmæla enn í Hong Kong

Þúsundir manna mótmæla enn í Hong Kong vegna umdeildra laga um framsalsheimildir, sem heimila framsal fólks frá Hong Kong til kínverskra yfirvalda á meginlandinu.

Umdeildu lagafrumvarpi mótmælt í Hong Kong

Þúsundir mótmælenda gengu fylktu liði að löggjafarþinginu í Hong Kong til að mótmæla umdeildu lagafrumvarpi sem heimilar framsal brotamanna frá sjálfstjórnarhéraðinu Hong Kong til meginlands Kína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×