Innlent

Höfðu afskipti af manni vopnuðum eggvopni

Andri Eysteinsson skrifar
Lögreglan hafði í nógu að snúast í dag,
Lögreglan hafði í nógu að snúast í dag, Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti um hádegisbilið í dag að hafa afskipti af vopnuðum manni í austurborginni. Tilkynnt var um manninn, sem sagður var vopnaður hníf og mætti lögregla á vettvang og eftir að maðurinn fannst var lagt hald á hnífa sem hann hafði meðferðis. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þá bárust lögreglu ýmisskonar tilkynningar í dag, tilkynnt var um eignaspjöll, grunsamlegar mannaferðir og þrír voru stöðvaðir í dag grunaðir um akstur undir áhrifum.

Þá var í morgunsárið tilkynnt um fjóra aðila í annarlegu ástandi í bíl í austurborginni. Allir fjórir voru handteknir, grunaðir um vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Voru þeir vistaðir í fangaklefa en látnir lausir að skýrslutökum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×