Brasilía skreið áfram eftir vítaspyrnukeppni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hetjurnar Brassanna, Allison og Jesus, fagna í leikslok.
Hetjurnar Brassanna, Allison og Jesus, fagna í leikslok. vísir/getty
Brasilía er komin í undanúrslit á Copa America eftir að hafa lagt Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Ekkert var skorað í venjulegum leiktíma og framlengingu.

Brasilía skoraði úr fjórum af fimm vítaspyrnum sínum. Það var aðeins Roberto Firmino, leikmanni Liverpool, sem brást bogalistin.

Það var Gabriel Jesus, leikmaður Man. City, sem skoraði úr síðustu spyrnu Brassanna og kom þeim áfram. Markvörður Brassanna, Allison Becker, hafði varið lokaspyrnu Paragvæa, sem og fyrstu spyrnu þeirra, og var því hetjan.

Brasilía er fyrsta liðið til þess að tryggja sig inn í undanúrslitin og mun mæta sigurvegaranum úr leik Kólumbíu og Síle næst.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira