Innlent

Lögreglan lýsir eftir Renars

Sylvía Hall skrifar
Síðast er vitað um ferðir Renars seinni partinn í gær.
Síðast er vitað um ferðir Renars seinni partinn í gær. Lögreglan á Suðurlandi
Uppfært 28.06.2019: Renars er kominn í leitirnar heill á húfi.

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir hinum 19 ára gamla Renars Mezgalis. Síðast er vitað um ferðir hans seinni partinn í gær.

Renars er 190 sentimetrar á hæð og er honum lýst sem meðalmanni að vexti. Hann hefur til umráða 2002 árgerð af Nissan Patrol með skráningarnúmerið YS-565.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um ferðir Renars eða vita hvar hann er niðurkominn eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×