England með sigur á Skotlandi í fyrsta leik

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Nikita Parris örugg á vítapunktinum
Nikita Parris örugg á vítapunktinum vísir/getty
England er komið á blað á HM í Frakklandi eftir sigur á nágrönnum sínum í Skotlandi í fyrsta leik en liðin leika í D-riðli ásamt Argentínu og Japan.

Nikita Parris kom Englandi yfir strax á 14.mínútu með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd þegar Jana Adamkova, dómari leiksins, nýtti sér myndbandatæknina en boltinn fór augljóslega í hönd Jenny Beattie innan vítateigs.

Þær ensku voru töluvert sterkari aðilinn í leiknum og því verðskuldað þegar Ellen White tvöfaldaði forystuna skömmu fyrir leikhlé.

Skoska liðið neitaði þó að gefast upp og komu sér aftur inn í leikinn þegar Claire Emslie minnkaði muninn 79.mínútu. Nær komust Skotarnir þó ekki og lokatölur 2-1 fyrir Englandi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira