Menning

Ætlaði alltaf að verða myndlistarmaður

Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar
Þetta er önnur einkasýning Ladda eftir fyrstu sýninguna fyrir tæpum tveimur árum.
Þetta er önnur einkasýning Ladda eftir fyrstu sýninguna fyrir tæpum tveimur árum. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi eins flestir þekkja hann, hefur löngum verið einn ástsælasti skemmtikraftur og gamanleikari þjóðarinnar. En honum er margt fleira til lista lagt en leik- og tónlistin, því undanfarin ár hefur hann tileinkað meiri og meiri tíma myndlistinni. Fyrir tæpum tveimur árum hélt hann sína fyrstu myndlistarsýningu einsamall, og nú er hann snúinn aftur á sama stað með nýja sýningu.

„Já, ég hélt mína fyrstu sýningu fyrir einu og hálfu ári í Smiðjunni Listhúsi. Þá var ég með 25 verk og það gekk mjög vel, þau seldust öll upp svo ég var sáttur,“ segir Laddi.

Teiknar mest fígúrur

Á sýningunni sem verður opnuð í kvöld verða til sýnis rúmlega 20 myndir og því fágætt tækifæri til að tryggja sér mynd eftir sjálfan Ladda.

„Maður vonar hið besta. Ef það selst allt upp aftur, þá getur fólk sett sig í samband og ég get gert mynd í svipuðum dúr. Það er ekki málið.“

Hann segir teikna mest fígúrur. „Þetta eru nokkurs konar portrettmyndir, nema þetta eru kannski ekki alveg eðlileg andlit, heldur meira hálfgerðar fígúrur. Kannski má segja að þetta séu karakterar sem ég næ ekki að skapa á sviði og verða því í staðinn til í myndunum mínum.“

Laddi segir það hafa aukist með árunum hve miklum tíma hann eyði í myndlistina. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari

Hefur mikið teiknað allt sitt líf

Hann byrjar fyrst á að teikna myndirnar og málar svo yfir teikningarnar með olíumálningu.

„Ætli ég hafi ekki byrjað að mála fyrst af alvöru fyrir áratug. Ég hef samt alltaf mikið teiknað í gegnum árin og haft mikinn áhuga á því. Ég ætlaði alltaf að verða myndlistarmaður en það varð aldrei því það var svo margt annað í gangi, ég varð náttúrulega skemmtikraftur og það var nóg að gera í því. Þannig að það var í raun ekki pláss fyrir þetta fyrr en núna,“ segir Laddi. Hann segir þann tíma sem hann eyðir í myndlistina aukast með árunum.

„Ég ætla mér að sinna myndlistinni áfram og stefni á að auka enn frekar á það. En ég ætla samt ekkert að minnka við mig neitt í hinu. Það er alltaf nóg að gera við það að skemmta og í raun er það bara að aukast líka. Ég bjóst einhvern veginn við því að það myndi draga úr því með árunum, sem var að hluta til ástæðan fyrir því að ég tók upp á því að mála. En það hefur ekki verið raunin, það er alltaf nóg að gera í því að skemmta úti um allan bæ og koma fram.“

Spurður hvort hann sé meira stressaður yfir viðtökunum þegar kemur að myndlistinni en leiklistinni segir Laddi svo ekki vera.

„Nei, þetta er bara voða svipað. Þetta er voðalega svipað og að vera að frumsýna verk. Þetta er sama stressið. Maður veltir því fyrir sér hvort einhver hafi gaman af því, eða myndin höfði til fólks. En maður verður bara að leiða það hjá sér og njóta þess sem maður er að gera á eigin forsendum.“



Vonar að sem flestir mæti á opnunina

Laddi segist taka myndlistina meira í törnum en yfir langt tímabil.

„Verkin sem eru á sýningunni í kvöld hafa flest verið máluð síðasta hálfa árið. Ég er búinn að mála mikið í vetur, mest eftir áramótin.“

Spurður hvað sé á döfinni segir hann það ekki fullplanað en það sé alltaf nóg að gera hjá honum, skemmtanir í hverri viku.

„Síðast var ég með sýninguna Laddi sjötugur og það gekk mjög vel. Það er nú ekki eitthvað sem maður getur gert á hverju ári, það væri of mikið. Ætli það verði ekki næst þegar maður verður 75 ára.“

Laddi segir myndlistina eiga allan sinn huga þessa dagana.

„Ég vona að fólk komi, vilji skoða verkin mín og hafi gaman af. Svo verður sýningin opin til 3. júní en það er óskandi að sem flestir mæti á opnunina,“ segir Laddi að lokum.

Sýning Ladda er í Smiðjunni Listhúsi í Ármúla 36 og verður opnuð klukkan 20.00 í kvöld. 

Rætt var við Ladda í Íslandi í dag í gær eins og sjá má hér að neðan.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×