Formúla 1

Uppgjör: Hamilton sigurvegari í spænska kappakstrinum

Bragi Þórðarson skrifar
Í sextánda skiptið á ferlinum leiddi Hamilton alla hringi kappakstursins
Í sextánda skiptið á ferlinum leiddi Hamilton alla hringi kappakstursins Getty
Spænski kappaksturinn fór fram um helgina og voru það enn og aftur Mercedes ökumennirnir sem enduðu í fyrsta og öðru sæti.

Fimmfaldi heimsmeistarinn, Lewis Hamilton, kom fyrstur í mark og var sigurinn hans þriðji á tímabilinu. Valtteri Bottas ræsti fyrstur en þurfti að sætta sig við annað sætið á sunnudaginn.

Hamilton leiddi keppnina alla hringina. Sigurinn var hans 76. á ferlinum og sá sextándi sem hann leiðir frá byrjun til enda.

,,Ég lenti í vandræðum með kúplinguna, þess vegna fór ég illa af stað’’ sagði Bottas eftir keppni. Finninn átti aldrei möguleika í liðsfélaga sinn en Hamilton fékk einnig aukastig fyrir að ná hraðasta hring.

Nú hefur Mercedes tæplega hundrað stiga forskot á Ferrari og Hamilton situr efstur í keppni ökuþóra, sjö stigum á undan Bottas.

 

Bottas, Hamilton og Vettel voru hnífjafnir í gegnum fyrstu beygju.Getty
Red Bull hraðari en Ferrari

Max Verstappen komst á verðlaunapall í annað skiptið á tímabilinu. Eins og staðan er núna lítur út fyrir að Red Bull sé að ná yfirhöndinni gegn Ferrari.

Ferrari hefur ekki unnið titil í rúm tíu ár og lítur allt út fyrir að það sé ekki að fara breytast í ár, þrátt fyrir að aðeins fimm keppnum sé lokið.

Sebastian Vettel endaði fjórði og liðsfélagi hans hjá Ferrari, Charles Leclerc, varð fimmti. Leclerc tapaði miklum tíma fastur fyrir aftan Vettel snemma í keppninni eftir að liðið beið alltof lengi með að láta Vettel víkja fyrir hraðari bílnum.

Aftur tapaði Ferrari liðið miklum tíma í seinni hluta kappakstursins er Vettel sat fastur fyrir aftan Leclerc í rúma þrjá hringi.

Hefði liðið látið Leclerc víkja fyrir Vettel sem var á mun betri dekkjum hefði þjóðverjinn hugsanlega náð þriðja sætinu.

Næsta keppni er hinn sögufrægi Mónakó kappakstur. Braut sú hefur ætíð hentað Red Bull bílunum mjög vel. Það verður áhugavert að sjá hvort Max Verstappen takist loksins að vinna Mercedes ökumennina í furstadæminu eftir tvær vikur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×