Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. júlí 2025 13:06 Jón Daði handsalar samninginn við stjórnarmenn Selfoss. vísir / sigurjón Jón Daði Böðvarsson er fluttur heim og hefur samið við Selfoss um að leika með liðinu í Lengjudeild karla.
Jón Daði var kynntur til leiks á blaðamannafundi sem fer fram þessa stundina á veitingastað í miðbæ Selfoss. Jón Daði er snúinn aftur heim á Selfoss.vísir / hjörtur leó Jón Daði greindi sjálfur frá því fyrir tveimur vikum að hann myndi snúa aftur heim til Íslands, eftir rúman áratug í atvinnumennsku erlendis. Hann var þá helst orðaður við Víking en síðasta sumar þegar hann var samningslaus var Jón orðaður við fleiri félög eins og KR, Breiðablik og Stjörnuna. Alltaf hefur heimafélag hans Selfoss þó verið inni í myndinni og sú varð niðurstaðan að lokum. Jón Daði skrifaði undir samning til ársins 2027. vísir / hjörtur leó Mikil hátíðahöld eru á Selfossi þessa stundina.vísir / hjörtur leó Hátíðarhöld við heimkomuna.vísir / sigurjón Ljóst er að hann mun reynast mikill og góður liðsauki fyrir Selfoss, sem er í fallbaráttu í Lengjudeildinni eftir að hafa komist upp í fyrra. Jón Daði í leik með Selfossi árið 2011. vísir Jón Daði lauk sínum atvinnumannaferli erlendis með liði Burton Albion sem hann spilaði með síðasta hálfa árið í þriðju efstu deild Englands. Jón Daði lék áður með Wrexham, Bolton, Millwall, Reading og Wolves á Englandi, eftir að hafa spilað með Kaiserslautern í Þýskalandi og Viking í Noregi en hann hóf meistaraflokksferil sinn heima á Selfossi. Jón Daði í baráttunni við Raphael Varane í leik Íslands og Frakklands árið 2019. vísir / vilhelm Jón Daði er 33 ára gamall, á að baki 64 landsleiki fyrir Ísland og var hluti af hópnum sem fór á EM 2016 og HM 2018, en spilaði síðast landsleik árið 2022. Nánar verður rætt við Jón Daða um heimkomuna í Sportpakka Sýnar að loknum kvöldfréttum. Fréttin hefur verið uppfærð með myndum af blaðamannafundinum.
Lengjudeild karla UMF Selfoss Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Enski boltinn „Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Sport Valur - Fram | Meistararnir mæta toppliðinu Handbolti Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Formúla 1 „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti „Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfubolti Fleiri fréttir Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Sjá meira