Körfubolti

Stjarnan getur enn mætt þremur liðum í undanúrslitunum og KR-liðið fjórum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjörnumennirnir Ægir Þór Steinarsson, 
Arnþór Freyr Guðmundsson, 
Antti Kanervo og Arnar Guðjónsson fylgjast örugglega vel með leikjum kvöldsins.
Stjörnumennirnir Ægir Þór Steinarsson, Arnþór Freyr Guðmundsson, Antti Kanervo og Arnar Guðjónsson fylgjast örugglega vel með leikjum kvöldsins. Vísir/Vilhelm
KR og Stjarnan eru komin í undanúrslit úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta en það verður barist um tvö síðustu sætin í kvöld. Bæði KR og Stjarnan geta enn mætt mörgum liðum í næstu umferð.

Leikmenn og þjálfara Stjörnunnar og KR fylgjast örugglega vel með oddaleikjunum í Njarðvík og á Sauðárkróki í kvöld.

Stöð 2 Sport mun sýna báða leiki kvöldsins í beinni. Leikur Tindastóls og Þórs hefst klukkan 18.30 en leikur Njarðvíkur og ÍR strax á eftir eða klukkan 20.15. Domino's körfuboltakvöld mun halda utan um allt kvöldið en útsendingin hefst klukkan 18.00.

Þetta verður sannkallað maraþon Domino's körfuboltakvöld því eftir uppgjör leikja kvöldsins í úrslitakeppni karla verður upphitunarþáttur fyrir úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna í beinni frá Njarðvík.

En aftur af möguleikum kvöldsins. Deildar- og bikarmeistarar Stjörnunnar og Íslandsmeistarar KR komust áfram fyrir helgi en hvaða liðum geta meistaraliðin mætt?

Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, er þannig þekktur fyrir að leikgreina andstæðinga sína niður í minnstu smáatriði en hann getur ekki byrjað á því fyrr en eftir oddaleikina tvo í kvöld.

Stjarnan tryggði sér sæti í undanúrslitunum á föstudagskvöldið en á enn möguleika á að mæta þremur liðum í undanúrslitunum. Ástæðan er að Stjörnuliðið er deildarmeistari og mætir alltaf liðinu sem endaði neðst í töflunni af þeim sem komast í undanúrslitin.

Stjarnan mætir ÍR-ingum takist Breiðhyltingum að vinna Njarðvík í Ljónagryfjunni í kvöld. Njarðvík komst í 2-0 í einvíginu en ÍR-ingar hafa unnið tvo leiki í röð. KR myndi þá mæta sigurvegaranum úr leik Tindastóls og Þór.

Stjarnan mætir Þórsurum takist Þórsliðinu að slá út Tindastól á sama tíma og Njarðvík klárar ÍR. KR myndi þá mæta Njarðvík.

Staðan er jafnvel enn flóknari hjá Inga Þór Steinþórssyni og lærisveinum hans í KR sem geta enn mætt fjórum liðum og eitt þeirra er Stjarnan. KR-liðið getur í rauninni mætt öllum liðunum sem eru eftir í úrslitakeppninni nema ÍR og allt fer þetta eftir úrslitum beggja leikja í kvöldsins.

KR endaði í fimmta sæti og verður mótherji Stjörnuliðsins ef Njarðvík og Tindastóll vinna bæði sína leiki í kvöld.

KR getur einnig mætt Njarðvík, Þór Þorlákshöfn og Tindastól en Njarðvík verður alltaf að vinna ÍR ef eitt þessara liða á að verða mótherji Vesturbæinga.

Mögulegir mótherjar Stjörnunnar

KR - ef Njarðvík og Tindastóll vinna í kvöld

Þór Þorlákshöfn - ef Þórs og Njarðvík vinna í kvöld

ÍR - ef ÍR vinnur í kvöld

[Getur ekki mætt Tindastól eða Njarðvík]

Mögulegir mótherjar KR

Stjarnan - ef Njarðvík og Tindastóll vinna í kvöld

Njarðvík - ef Njarðvík og Þór vinna í kvöld.

Þór Þorlákhöfn - ef ÍR og Þór vinna í kvöld

Tindastóll - ef ÍR og Tindastóll vinna í kvöld

[Getur ekki mætt ÍR]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×