Körfubolti

Stjarnan býður ÍR-ingum að mæta í bjór og vængi fyrir leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Stjörnunnar ætla að taka á móti stuðningsmönnum ÍR með opinn faðminn í kvöld.
Stuðningsmenn Stjörnunnar ætla að taka á móti stuðningsmönnum ÍR með opinn faðminn í kvöld. vísir/bára
Það verður aukin öryggisgæsla á leik Stjörnunnar og ÍR í undanúrslitum Dominos-deildar karla í kvöld en bæði félög vonast þó eftir því að allt fari vel fram.

Það sauð auðvitað upp úr á milli stuðningsmanna liðanna í undanúrslitum bikarkeppninnar á dögunum. Það voru líka átök er liðin mættust í úrslitakeppninni í fyrra. Svo hefur ástin ekki beint svifið á milli þjálfara liðanna í vetur.

„Við höfum boðið ÍR-ingum að koma og skemmta sér með okkur. Þetta á að vera gaman,“ segir Hilmar Júlíusson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, við Vísi en stuðningsmenn Stjörnunnar ætla að byrja að hita upp á Dúllubar þar sem hægt verður að fá öl og vængi úr smiðju Stjörnugoðsagnarinnar Justin Shouse.

Stjörnumenn hafa boðið strákunum í Ghetto Hooligans að mæta þar fyrir leik og lyfta sér upp með Garðbæingum fyrir fyrsta leik liðanna.

„Við höfum verið í sambandi við ÍR-ingana og það vilja allir að þetta fari vel fram. Það eru aðrir en við sem hafa stórar áhyggjur af þessu. Það vilja allir að þetta sé eins og hjá fólki. Ef menn hittast og sjá framan í hvorn annan þá sjá þeir kannski að hinn aðilinn er ekki eins mikill hálfviti og viðkomandi hélt. Það snýst svolítið um það,“ segir Hilmar en Stjörnumenn hafa þó vaðið fyrir neðan sig og hafa aukið öryggisgæsluna fyrir leikinn.

„Hún er meiri en venjulega. Ef við værum að mæta KR þá hefðum við líka aukið hana. Auðvitað erum við meðvitaðir um söguna í fyrra og núna. Við erum ekki kjánar. Hvorugur aðilinn er samt að búast við einhverju veseni. Það vilja allir að þetta sé almennilega gert en allur er varinn góður og menn verða að læra af mistökunum.“

Hilmar, ásamt fleirum, er orðinn mjög spenntur fyrir því að fá vængina hans Shouse í kvöld.

„Þetta eru heimsfrægir vængir og þetta er í annað sinn sem hann mætir með þá í vetur. Hann var með þá í liðspartíum Stjörnunnar undanfarin tíu ár þar sem þeir slógu í gegn. Það hefur verið suðað í honum að gera þetta aftur og ég mæli með því að það mæti allir og smakki hjá kallinum,“ segir formaðurinn léttur.

Leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport sem og í beinni textalýsingu á Vísi.






Tengdar fréttir

Hlynur var „kýldur niður:“ Það var tekið upp eitthvað „show“

Mikill hiti var í mönnum í Seljaskóla í kvöld þar sem ÍR og Stjarnan mættust í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla. ÍR fór með þriggja stiga sigur, 67-64, eftir háspennu leik. Mikil harka var í leiknum og í fyrsta leikhluta átti sér stað atvik þar sem Ryan Taylor, leikmaður ÍR, virðist slá Hlyn Bæringsson hjá Stjörnunni í höfuðið.

Arnar: Vinnubrögð sem voru gjörsamlega galin

Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, sagðist aðspurður hvað hann hefði sagt við sína menn í hálfleik í sigrinum gegn ÍR að hann hefði einfaldlega ekki undirbúið lið sitt undir það að mæta 2-3 svæðisvörn gestanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×