Körfubolti

Ólafur Helgi sló öllum við í plús og mínus í átta lið úrslitunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Helgi Jónsson skorar hér körfu i einvíginu.
Ólafur Helgi Jónsson skorar hér körfu i einvíginu. Vísir/Bára
Njarðvíkingurinn Ólafur Helgi Jónsson var hæstur allra leikmanna í plús og mínus í átta liða úrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta.

Njarðvíkingar eru úr leik eftir tap í oddaleik á móti ÍR og tölfræðin sýnir fram á það að Ólafur Helgi hafi spilað alltof lítið í einvíginu.

Ólafur Helgi spilaði í rúma 101 mínútu í einvíginu og Njarðvík vann með 45 stigum á meðan hann var inn á vellinum. Ólafur var á bekknum í rúmar 98 mínútur og þeim tapaði Njarðvíkurliðið með 51 stigi. Þarna er því 96 stiga sveifla.

Ólafur Helgi var með 7,2 stig og 3,2 fráköst í leik í einvíginu en hann hitti úr 6 af 13 þriggja stiga skotum sínum eða 46 prósent. Ólafur setti líka niður öll átta vítaskotin sín.

Næstir á eftir Ólafi Helga voru þeir AnttiKanervo hjá Stjörnunni og MikeDiNunno hjá KR. MikeDiNunno spilaði aðeins þrjá leiki og var því með hæsta plús og mínus að meðaltali eða 14 í leik.

Í fjórða sætinu var síðan ÍR-ingurinn KevinCapers en hann tók út leikbann í einum leikjanna. ÍR vann alla þrjá leikina eftir að KevinCapers kom til baka úr banninu og hann var +41 í þeim þremur leikjum.

Hæsta plús og mínus í átta liða úrslitum:

1.     Ólafur Helgi Jónsson, Njarðvík     +45

2.     AnttiKanervo, Stjarnan     +43

3.     MikeDiNunno, KR     +42

4.     KevinCapers, ÍR     +41

5.     Hlynur Elías Bæringsson, Stjarnan     +41

6.     Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan     +38

7.     PavelErmolinskij, KR     +34

8.     BrandonRozzell, Stjarnan     +31

9.     Julian Boyd, KR     +28

10.    Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þ.     +25




Fleiri fréttir

Sjá meira


×