Viðskipti innlent

Krist­rún Tinna ráðin for­stöðu­maður hjá Ís­lands­banka

Atli Ísleifsson skrifar
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir.
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir. Íslandsbanki
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður á skrifstofu bankastjóra Íslandsbanka.

Í tilkynningu frá bankanum segir að Kristún Tinna muni sinna verkefnum tengdum innleiðingu á stefnu Íslandsbanka sem unnin hafi verið að af starfsmönnum og ytri ráðgjöfum undanfarna mánuði.

„Kristrún hefur yfir tíu ára reynslu af verkefnastjórnun, stefnumótun og greiningarvinnu á Íslandi og erlendis. Kristrún sat nýverið í verkefnahóp Fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem vann Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið. Hún hefur á undanförnum árum starfað hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Oliver Wyman sem yfirverkefnastjóri og áður sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá Beringer Finance í Stokkhólmi,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×