Lífið

Sidemen-hópurinn reyndi við fjölmörg heimsmet með misjöfnum árangri

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sidemen hópurinn er mjög vinsæll.
Sidemen hópurinn er mjög vinsæll.
YouTube-hópurinn Sidemen reyndi að slá heimsmet á dögunum og sýndu frá því á YouTube rás sinni.

Í Sidemen eru þeir KSI, Harry, Ethan, Vik, Simon, Josh, Tobi en saman reyndu þeir við nokkur heimsmet.

Það fyrsta var að brjóta vatnsmelónur með höfðinu og tókst það ekki. Því næst reyndu þeir við smákökuát og tókst það heldur ekki. Því næst var það heimsmet tilraun í því að klæða sig í fatnað, eitthvað sem enginn hefur áður reynt.

Þeir félagar reyndu við nokkur heimsmet en myndbandið sjálft er það vinsælasta á YouTube um þessar mundir.

Forsvarsmenn heimsmetabókar Guinness voru ekki á svæðinu og því spurning hvort metin hefðu talið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×