Innlent

Tímamót á Seltjarnarnesi

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Nýja hjúkrunarheimilið er hið glæsilegasta.
Nýja hjúkrunarheimilið er hið glæsilegasta. Fréttablaðið/Seltjarnarnesbær
Fjórum árum og átta mánuðum eftir að fyrsta skóflustungan var tekin að nýju hjúkrunarheimili við Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi er heimilið nú fullklárað. Velferðarráðuneytið og Seltjarnarnesbær stóðu saman að framkvæmdunum. „Með stolti og gleði afhendir Seltjarnarnesbær húsnæðið nú í byrjun febrúar 2019, fullfrágengið til rekstraraðila heimilisins,“ segir í fréttatilkynningu frá bænum.

Í dag klukkan 13.00 verður vígslu­athöfn hjúkrunarheimilisins við Safnatröð þar sem boðið verður upp á sérstaka hátíðardagskrá auk þess sem klippt verður á borða og húsið blessað. Við það tækifæri verður nafn hjúkrunarheimilisins jafnframt kynnt.

Samkvæmt upplýsingum frá Seltjarnarnesbæ er hjúkrunarheimilið hið glæsilegasta. Það samanstendur af fjórum heimilum, hvert og eitt með tíu herbergjum. Alls eru þetta því 40 hjúkrunarrými ásamt kjarna fyrir dagdvöl, sjúkraþjálfun, iðju og þjónustu.

„Ákvörðun um byggingu hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi hefur markað tímamót í byggingarsögu stofnana fyrir aldraða hér á Nesinu,“ segir í fréttatilkynningunni. „Þetta heimili hefur verið skipulagt og hannað frá grunni með það fyrir augum að vera raunverulegt heimili fólks sem heilsu sinnar vegna er ekki lengur fært um að búa á eigin vegum.“

Hjúkrunarheimilið verður rekið eftir nýrri hugmyndafræði í öldrunarþjónustu sem felur í sér sameiningu á helstu kostum sjálfstæðrar búsetu og þess öryggis sem hjúkrunarheimili hafa upp á að bjóða.

„Þessi hugmyndafræði byggir á þátttöku íbúanna sjálfra og aðstandenda þeirra í hinu daglega lífi á heimilinu, þar sem starfsfólk og íbúar vinna saman að því að skapa virkt og hlýlegt samfélag.“

Heilbrigðisráðuneytið hefur falið Vigdísarholti, einkahlutafélagi í eigu ríkisins, að annast rekstur hjúkrunarheimilisins og er gert ráð fyrir því að starfsemi hefjist í húsinu á allra næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×