Framlengingin: Arnar er besti þjálfari deildarinnar Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. febrúar 2019 14:00 Hermann Hauksson og Fannar Ólafsson s2 sport
Arnar Guðjónsson er besti þjálfari Domino's deildarinnar, Blikar eiga bara að spila á Íslendingum og það er lægð yfir ÍR. Þetta var á meðal þess sem kom fram í Framlengingunni í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport. Framlengingin er staður þar sem mörg af helstu málefnum líðandi stundar eru rædd. Í þetta skiptið byrjaði Kjartan Atli Kjartansson á því að setja fram spurninguna um hver er besti þjálfari deildarinnar. „Arnar Guðjónsson, eins og staðan er í dag,“ var Fannar Ólafsson fljótur að segja. „Hann er varnarsinnaður, hann kann að búa til réttar færslur í vörn, hann sér liðið sitt rúlla allan hringinn.“ Hermann Hauksson tók undir með Fannari en nefndi einnig til sögunnar Einar Árna Jóhannsson og Ívar Ásgrímsson. Breiðablik mætti til leiks gegn Skallagrími án atvinnumanna. Blikar eru svo gott sem fallnir og virðast hálfpartinn vera búnir að kasta inn handklæðinu. Er það rétt hjá þeim að senda erlendu leikmennina heim? „Þeir eru bara miklu betri og spila skemmtilegri bolta, spila fyrir hvorn annan. Ég myndi alltaf bara senda þá burt og taka þetta rammíslenskt,“ sagði Hermann. „Já, þetta er hárrétt. Þegar þú hefur ekkert að spila upp á þá viltu frekar búa til reynsu svo þeir hafi eitthvað að byggja á.“ Alla umræðuna má sjá hér að neðan þar sem þeir félagar ræða hvaða lið eru í lægð, hverjir nýta landsleikjahléið best og hverjir hefðu átt að gera betur í glugganum.Klippa: Framlengingin: Arnar besti þjálfari deildarinnar
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira