Gular viðvaranir ráða ríkjum í dag Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. september 2019 08:08 Úrkomuspáin á landinu klukkan tíu. Skjáskot/veðurstofa íslands
Spáð er talsverðri eða mikilli rigningu sunnan- og vestanlands í dag og gular viðvaranir í gildi allt frá Breiðafirði og austureftir suðurströndinni. Búast má við mjög snörpum vindhviðum á norðanverðu Snæfellsnesi og við Hafnarfjall fram eftir morgni. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að búast megi við nokkuð hvassri sunnanátt í áðurnefndum landshlutum í dag, með mikilli rigningu. Hiti verður 10 til 18 stig á landinu, hlýjast um landið norðaustanvert. Síðdegis dregur svo úr vindi og rigningu vestantil á landinu. Eins og áður segir eru gular viðvaranir í gildi á Suður- og Vesturlandi, nánar tiltekið á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og Suðausturlandi. Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við vatnavöxtum í ám og lækjum. Þá er fólk hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Á svæðum þar sem úrkoma verður mest má jafnframt búast við skriðum og grjóthruni í brattlendi. Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, yfirleitt 5-10 m/s. Skúrir og milt veður en styttir upp austanlands. Og á mánudag er útlit fyrir fremur hæga breytilega átt með stöku skúrum, en rigningu um tíma á Vestfjörðum.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag:Fremur hæg breytileg átt og víða dálitlar skúrir, einkum síðdegis. Hiti 6 til 12 stig.Á þriðjudag:Austan 5-13, en 13-18 syðst. Víða rigning, einkum sunnanlands, en úrkomulítið um landið norðvestanvert. Hiti breytist lítið.Á miðvikudag:Norðan og norðaustan 5-10 m/s og rigning eða súld norðan- og austantil á landinu og hiti 3 til 8 stig, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt um landið suðvestanvert og hiti 7 til 13 stig.Á fimmtudag:Fremur hæg breytileg átt og víða rigning. Heldur kólnandi veður.Á föstudag:Vestlæg átt, skúrir á víð og dreif og fremur svalt í veðri.
Veður Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið Sjá meira