Gylfi er einu klúðri á vítapunktinum frá því að setja met sem enginn vill eiga Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. mars 2019 10:49 Gylfi Þór reynir að fagna markinu á móti Chelsea en er svekktur að hafa brennt af vítinu. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður Íslands og leikmaður Everton, er einu klúðri á vítapunktinum frá því að setja met í ensku úrvalsdeildinni sem enginn vill eiga. Gylfi Þór er nefnilega búinn að klúðra þremur vítaspyrnum á tímabilinu en nú síðast lét hann Kepa Arrizabalaga, markvörð Chelsea, verja frá sér í síðustu umferð fyrir landsleikjafrí. Gylfi fylgdi reyndar á eftir og skoraði tólfta mark sitt á tímabilinu úr frákastinu. Enginn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hefur brennt af fjórum vítaspyrnum á sama tímabilinu en Gylfi er nú kominn í hóp goðsagna sem hafa klúðrað þremur spyrnum sama veturinn frá því enska úrvalsdeildin var sett á laggirnar árið 1992. Mike Newell, leikmaður Blackburn, var sá fyrsti en hann klúðraði öllum þremur spyrnum sínum á fyrsta tímabili ensku úrvalsdeildarinnar 1992/1993 og Teddy Sheringham gerði slíkt við sama sem leikmaður Tottenham og Manchester United tímabilin 1994/1995 og 1997/1998. Alan Shearer, Ruud van Nistelrooy og Wayne Rooney eru allt leikmenn sem hafa klúðrað þremur vítaspyrnum sama tímabilið og nú er Gylfi kominn í þann hóp ásamt Paul Pogba, miðjumanni Manchester United, sem einnig hefur þrívegis klikkað á vítapunktinum í vetur. Pogba er því sömuleiðis einni spyrnu frá því að setja met sem enginn vill eiga en hann er búinn að klúðra þremur af átta en Gylfi þremur af fimm.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 5-2 | Öruggt hjá meisturunum eftir erfiða byrjun Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik Íslenski boltinn Sama sorglega lausnin og vanalega: Drögum kvennaliðið úr keppni Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Íslenski boltinn Mjög ósáttur við rasisma meðal þýsku þjóðarinnar Fótbolti „Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Sport Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fótbolti Charles Barkley og fleiri hneyksluð yfir ljótum brotum á Caitlin Clark Körfubolti Landsliðskonan náði á kjörstað fyrir lokun Sport Fleiri fréttir Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Íslenski boltinn