Gylfi tók toppsætið af Eiði Smára Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2018 10:30 Gylfi Þór Sigurðsson og Eiður Smári Guðjohnsen. Samsett/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson er nú kominn upp fyrir Eið Smára Guðjohnsen í sköpuðum mörkum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær og er þar með einn í efsta sæti yfir flest sköpuðu mörk Íslendinga í deildinni. Hér er farið eftir opinberri tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar. Gylfi tók metið af Eið Smára í gær en hann hafði jafnað það með stoðsendingu á móti Bournemouth í lok ágúst. Eiður Smári hélt einmitt upp á fertugsafmælið sitt um helgina þar sem snjósleðar og trampólín komu við sögu. Gylfi hefur með markinu á móti West Ham á Goodison Park í gær komið með beinum hætti að 84 mörkum í ensku úrvalsdeildinni.| A brilliant header by Gylfi. Goodison will be up for this second half! #EFCmatchdaypic.twitter.com/q6a6gA4FNl — Everton (@Everton) September 16, 2018Þetta var 47. markið hans og hann hefur einnig gefið 37 stoðsendingar á félaga sína. Eiður Smári Guðjohnsen er enn með átta marka forskot í skoruðum mörkum en Eiður skoraði á sínum tíma 55 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi er aftur á móti kominn 9 stoðsendingum fram úr Eiði og er sá íslenski knattspyrnumaður sem hefur gefið flestar stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi spilaði sinn 214. leik í ensku úrvalsdeildinni í gær en Eiður Smári spilaði á sínum tíma 211 leiki í deildinni. Leikjahæstur Íslendinga í deildinni er hins vegar Hermann Hreiðarsson með 332 leiki. Gylfi þarf því að leika að minnsta kosti fjögur tímabil í viðbót í deildinni til að ná Hermanni. Gylfi og Eiður Smári eru með yfirburðarstöðu á þessum lista yfir sköpuð mörk en þeir hafa komið að meira en tvöfalt fleiri mörkum en sá sem er í þriðja sætinu. Sá er Heiðar Helguson. Það má sjá allan topplistann hér fyrir neðan.Flest mörk+stoðsendingar hjá Íslendingum í ensku úrvalsdeildinni: 1. Gylfi Þór Sigurðsson 84 mörk (47 mörk + 37 stoðsendingar) 2. Eiður Smári Guðjohnsen 83 mörk (55 mörk + 28 stoðsendingar) 3. Heiðar Helguson 37 mörk (28 mörk + 9 stoðsendingar) 4. Hermann Hreiðarsson 29 mörk (14 mörk + 15 stoðsendingar 5. Jóhann Berg Guðmundsson 14 mörk (3 mörk + 11 stoðsendingar) 6. Guðni Bergsson 12 mörk (8 mörk + 4 stoðsendingar) 6. Grétar Rafn Steinsson 12 mörk (4 mörk + 8 stoðsendingar)
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Handbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira