Því fleiri áheit, því fleiri kílómetrar Bergþór Másson skrifar 1. ágúst 2018 20:50 Pétur, Aron og Sigurbjartur. Xdeathrow
Samfélagsmiðlastjarnan Aron Mola, athafnamaðurinn Pétur Kiernan og poppstjarnan Sturla Atlas ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar góðgerðasamtökunum Einstök börn. Félagarnir eru skráðir í tíu kílómetra hlaup en er áheitasöfnun þeirra óhefðbundin á þann hátt að kílómetrunum mun fjölga eftir því sem áheitin verða meiri. Ef áheitin komast upp í 2 milljónir króna munu þeir fara úr upprunalegu tíu kílómetrunum sem þeir eru nú skráðir í, upp í hálf maraþon (21km). Ef þeim tekst síðan að safna 4 milljónum munu þeir hlaupa heilt maraþon (42km). Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa, alvarlega sjúkdóma. Sjúkdómarnir eru sjaldgæfir og oft á tíðum lítið þekktir og engin lækning eða læknismeðferð þekkt.Á styrktarsíðu strákanna kemur fram að „það lengsta sem Pétur og Sigurbjartur hafa hlaupið eru 10km og svo hefur Aron Mola varla klætt sig í hlaupaskó á ævinni.“ Í samtali við Vísi segir Pétur að þeir séu á fullu að æfa sig fyrir hlaupið og að hann hafi mikla trú á sjálfum sér og Sigurbjarti en viðurkennir þó að hann hafi smá áhyggjur af Aroni. „Moli hljóp þrjá kílómetra á hlaupabretti áðan og var gjörsamlega búinn á því.“ Ég, @aronmola og @sturlaatlas ætlum að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu þann 18. ágúst fyrir Einstök börn. Við erum allir skráðir í 10km eins og staðan er en ef við söfnum 2 milljónum hlaupum við 21km og ef við söfnum 4 þá hlaupum við heilt maraþon. Við ætlum að byrja söfnunina með smá leik með 66 (Nánar í story). Þetta er málefni sem öllum ætti að vera annt um og ég hvet alla til þess að heita á okkur. #rvkmarathon A post shared by pétur kiernan (@peturkiernan) on Jul 31, 2018 at 2:48pm PDTStrákarnir byrjuðu að æfa í vikubyrjun og stefna á að nýta þá 17 daga sem eftir eru fram að hlaupinu sjálfu til fulls. Pétur segir það hinsvegar vera smá „dagger“ að verslunarmannahelgin sé núna um helgina og sér hann ekki fram á að fara mikið út að hlaupa á Þjóðhátíð. Pétur vonar innilega að þeim takist að safna þessum fjórum milljónum fyrir Einstök börn, þrátt fyrir það að skyldi þeim takast það, þurfi hann sjálfur að hlaupa heilt maraþon. Fjáröflunin hófst í gærkvöldi og þegar þessi frétt er skrifuð hafa þeir félagarnir nú þegar safnað 226.500 krónum. Reykjavíkurmaraþonið fer fram þann 18. ágúst og hægt er að heita á drengina hér.
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira