80 prósent marka hennar í leikjunum tveimur sem tryggðu titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2018 13:00 Alexandra Jóhannsdóttir. Fréttablaðið/Anton
Alexandra Jóhannsdóttir er Íslands- og bikarmeistari á sínu fyrsta tímabili með Breiðabliki en það var einmitt þessi átján ára stelpa sem gerði heldur betur útslagið í síðustu tveimur leikjum þar sem Blikarnir tryggðu sér titilinn. Alexandra Jóhannsdóttir skoraði tvö mörk í 3-1 sigri á Selfossi í gær sem endanlega tryggði Blikum Íslandsmeistaratitilinn en í leiknum á undan skoraði hún tvö fyrstu mörkin í 3-0 sigri á Þór/KA í óopinberum úrslitaleik mótsins. Það sem meira er að Alexandra Jóhannsdóttir skoraði bara eitt mark í fyrstu fimmtán deildarleikjum sínum í Pepsideild kvenna í sumar. Hún fann hins vegar markaskóna á hárréttum tíma. Hún skoraði fjögur mörk í þessum úrslitaleikjum Íslandsmótsins eða 80 prósent deildarmarka sinna í sumar. Það fylgir líka sögunni að þessir leikir á móti Þór/KA og Selfossi voru ennfremur fyrstu tveir leikir Alexöndru eftir að hún var valin fyrst í íslenska A-landsliðið. Áður en Alexandra var valin í A-landsliðið hafði hún skorað samtals bara 3 mörk í 31 leik í Pepsideild kvenna en Freyr Alexandersson náði svo um munaði að dæla inn á sjálfstrauststankinn með því að taka hana inn í A-landsliðið. Mörkin tvö á móti Selfossi í gær voru líka engin tilviljun því Alexandra óð í færum í leiknum og hefði auðveldlega getað verið með þrennu eða fernu á Kópavogsvelli í gær.Alexandra Jóhannsdóttir með Breiðabliki í deild og bikar 2018:Alexandra Jóhannsdóttir áður en hún var valin í A-landsliðið: 19 leikir, 4 mörk 392 mínútur á milli markaAlexandra Jóhannsdóttir eftir að hún var valin í A-landsliðið: 2 leikir, 4 mörk 45 mínútur á milli marka
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira