Handtekinn í Buckinghamhöll Andri Eysteinsson skrifar 23. september 2018 16:45 Buckinghamhöll í London er aðsetur Elísabetar II. Bretadrottningar.
Breska lögreglan handtók í dag mann við gestainngang að Buckinghamhöll í Lundúnum.BBC greinir frá því að maðurinn sem er 38 ára gamall hafi verið stöðvaður af öryggisvörðum hallarinnar grunaður um að hafa rafbyssu meðferðis.upp komst um rafvopnið þegar maðurinn gekk í gegnum öryggishlið við gestainngang hallarinnar. Lögregla telur að atvikið sé ekki tengt hryðjuverkastarfsemi en hefur manninn enn í haldi sínu. Hluti hallarinnar er opinn gestum í tíu vikur á hverju sumri. Buckinghamhöll er eitt frægasta kennileiti Lundúna og er aðsetur breska þjóðhöfðingjans, drottningarinnar Elísabetar II. Elísabet var ekki stödd í höllinni þegar maðurinn var handtekinn en hún dvelur nú í aðsetri sínu í Balmoral kastala í Skotlandi. Öryggisgæsla er ströng við höllina en þó hafa í gegnum tíðina komið upp atvik þar sem hún bregst. Síðast í ágúst laumaðist heimilislaus maður inn í garð hallarinnar en lengst náði maður að nafni Michael Fagan árið 1982 en hann komst inn í herbergi drottningar þar sem hann settist á rúm hennar á meðan hún svaf. Á þeim tíma var þó ekki hægt að dæma menn fyrir samskonar innbrot í Buckinghamhöll.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán