Viðskipti innlent

Stjórnarformaðurinn sendir frá sér yfirlýsingu um Tekjur.is

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Jón R. Arnarson er stjórnarformaður Viskubrunns ehf.
Jón R. Arnarson er stjórnarformaður Viskubrunns ehf. Mynd/Aðsend
Jón R. Arnarson stjórnarformaður Viskubrunns ehf. sendi frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla í kvöld vegna vefsíðunnar Tekjur.is, sem vakið hefur mikla athygli í dag. Í yfirlýsingunni gengst Jón við því að vera stjórnarformaður fyrirtækisins en aðstandendur vefsins höfðu ekki komið fram undir nafni, þar til nú.

Greint var frá opnun upplýsingavefsins Tekjur.is í dag en á vefnum eru birtar upplýsingar um launa- og fjármagnstekjur allra Íslendinga átján ára og eldri samkvæmt skattskrá ríkisskattstjóra vegna tekna ársins 2016. Hægt er að nálgast upplýsingar með greiðslu áskriftargjalds sem nemur 2.790 kr. fyrir fyrsta mánuðinn og svo 790 kr. á mánuði eftir það.

Sjá einnig: Persónuvernd vísaði frá kvörtunum vegna tekjublaða Frjálsrar verslunar og DV

Í yfirlýsingu Jóns gengst hann við því að vera stjórnarformaður fyrirtækisins Viskubrunns ehf., sem er rekstraraðili síðunnar. Áður hafði komið fram að Jón væri skráður stjórnarformaður fyrirtækisins en ekki hafði þó náðst í hann við vinnslu umfjöllunar um vefinn. Fyrirspurnum Vísis, sem sendar voru á netfangið info@tekjur.is, hafði jafnframt hingað til verið svarað nafnlaust.

Í yfirlýsingunni áréttar Jón það sem áður hefur komið fram í yfirlýsingum frá aðstandendum vefsins, m.a. að Viskubrunni ehf. sé ætlað að stuðla að „gagnsæi og samræmi í umfjöllun um skattamál“ og að birting upplýsinganna „byggi á heimild í sérstöku ákvæði skattalaga.“

Yfirlýsing Jóns í heild:

Almenningur hefur rétt á að vita

Í morgun var opnaður upplýsingavefurinn Tekjur.is, þar sem birtar eru  upplýsingar um tekjur fullorðinna Íslendinga. Rekstraraðili síðunnar er  fyrirtækið Viskubrunnur ehf. og er ég stjórnarformaður félagsins.

Viskubrunnur ehf. var stofnaður til að stuðla að gagnsæi og samræmi í  umfjöllun um skattamál. Þannig eru ekki birtar upplýsingar um þröngan  hóp valinna einstaklinga, heldur er notendum síðunnar í sjálfsvald sett hvaða upplýsingar þeir kynna sér.

Upplýsingarnar á tekjur.is eru endanlegar upplýsingar um framtaldar  tekjur. Þar eru ekki birtar bráðabirgðaupplýsingar eða áætlanir eins og  hingað til hefur tíðkast í tekjublöðum.

Fyrir einkaaðila er umtalsverð vinna og kostnaður fólgin í því að taka  upplýsingarnar saman og gera þær aðgengilegar fyrir almenning. Hóflegu  aðgangsgjaldi er ætlað að standa straum af þeim kostnaði.

Birting upplýsinganna byggir á heimild í sérstöku ákvæði skattalaga.

Jón R. Arnarson stjórnarformaður Viskubrunns ehf.

 

Telur birtinguna óheimila

Persónuvernd hafa þegar borist kvartanir vegna vefsíðunnar Tekjur.is og er málið í forgangi hjá stofnuninni, að sögn Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar.

Björgvin Guðmundsson almannatengill er á meðal þeirra sem lagt hefur fram kvörtun til Persónuverndar. Hann sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að hann teldi birtingu upplýsinganna óheimila samkvæmt lögum og gróft brot á friðhelgi einkalífsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×